Bækur
Skrapp áðan á bókamarkað Eddu í Mörkinni. Mörkin er mjög nálægt McDonald's, sem þýðir að einn sveittur BigMac fékk að fljóta með heim á leið. Bækur og borgari - það gerist varla plebbalegra. Annars tókst mér að eyða um fjögurþúsundkalli á þessum markaði. Við skulum athuga að það tekur mig heila kvöldvakt að vinna fyrir þeim peningum, þegar reiknað er með skattinum! Þetta er hneisa. Það sem ég fékk fyrir þennan dýrmæta aur var eftirfarandi:
?
Moskvulínan eftir
Arnór Hannibalsson. Fjallar aðallega um tengsl Íslands við Sovétríkin. Skelli henni í styrjaldadeildina í bókaskápnum. Gæti komið að notum einhvern tímann.
?
Uppgjör við umheiminn eftir
Val Ingimundarson. Fjallar aðallega um tengsl Íslands við Bandaríkin. Það verður að vera jafnvægi í svona bókaleiðöngrum. Þessi var dýrari en Moskvulínan, þrátt fyrir að vera þynnri. Skyldi það þýða eitthvað?
?
Kristnihald undir Jökli eftir
Halldór Laxness. Hljóðbók, lesin af Dóra sjálfum. Það viðurkennist hér með að ég er hljóðbókasjúklingur. Enda latari en andskotinn - líka við að lesa eigið bókasafn.
?
Edda eftir
Þórberg Þórðarson. Þórbergur var náttúrulega snillingur, og mig vantaði þessa í safnið. Þá á ég bara eftir að útvega fjórar bækur í viðbót til að eiga Þórberg komplett.
?
Hamlet eftir
William Shakespeare. Skakspíri er náttúrulega klassík. Eitthvað sem ég á ábyggilega eftir að lesa - einhvern tímann.
?
Ævintýri nálfanna eftir
Terry Pratchett. Þessi fylgdi ókeypis með. Af þrennu illu féllst ég á að taka þessa. Hinar tvær sem um var að velja voru einhverjar kvennabókmenntir um ástir og örlög kúgaðra kvenna á tímum pestarinnar. Eða eitthvað í þá veruna. Satt að segja staldraði ég ekki það lengi við þær til að komast að því.
Og þar hafiði það. Æsispennandi dagur. Hvað skyldi gerast á morgun?