Stofnað 2004

Kennarar á ný

Jamm, ég ætla að bæta aðeins við kennaraumræðuna. Það má vel vera að enginn nenni að lesa það, en mér er svo sem alveg sama. Þetta er mitt blogg. Ef mig langar að skrifa um vandamál tómataræktenda í Mósambík, þá geri ég það. En nú eru það kennararnir. Þeir náðu nýjum hæðum í ruglinu í dag þegar launanefnd kennara óskaði eftir fundi við nokkur sveitarfélög. Kennarar óskuðu sem sagt eftir að sniðganga launanefnd sveitarfélaganna (nefnd sem sveitarfélögin hafa veitt fullt og óskorað umboð til að semja fyrir sig) og ræða beint við útvalin sveitarfélög um kjaradeiluna. Og þeim finnst ekkert athugavert við það! ?Það er nú ekkert að því að tala við ábyrgðarmenn hjá sveitarfélögunum?, lét Elna Katrín, varaformaður Kennarasambandsins hafa eftir sér. Það er einmitt það. Mér þætti gaman að vita hvað kennarar myndu segja ef launanefnd sveitarfélaganna gengi fram hjá launanefnd kennara og hæfi einkaviðræður við kennara í ábyrgðarstöðum hjá nokkrum skólum. Myndi það valda gleði hjá félagi grunnskólakennara? Svona aulaháttur er náttúrulega merkilegur fyrir nokkurra hluta sakir. Í fyrsta lagi er þetta sama fólkið og á að mennta börnin í þjóðfélaginu. Og þetta er sama fólkið og skilur hvorki upp né niður í því af hverju umræðan undanfarið hefur verið þeim óvilhöll. Umrædd Elna Katrín vill meira að segja helst að fólk sé ekkert mikið að tala um deiluna. Það væri náttúrulega voða þægilegt fyrir kennara ef enginn væri til að benda á sumt af því vitlausasta sem forsvarsmenn Þeirra hafa verið að láta út úr sér en þannig virkar þetta einfaldlega ekki. Það stoðar lítið að klúðra málunum algjörlega og vonast svo bara til að enginn minnist á það.

Athugasemdir: