Stofnað 2004

Ömurleiki hversdagsins

Oft á dag detta mér í hug skemmtilegir og áhugaverðir hlutir til að skrifa um. Heilu gamansögunum og pólitísku byltingargreinunum lýstur niður í ómerkilegan huga minn þegar ég banka upp á í Hraunbæ 174 með sjóðheitt Sparitilboð A, eða þegar ég opna dós af þistilhjörtum. En eðli málsins samkvæmt er ég hvergi nálægt tölvu þegar þessar eðalhugmyndir og sögugræðlingar fæðast, og loksins þegar ég er kominn heim er þessi ógeðslega vinna búin að drepa niður allt líf í hugskoti mínu og eftir situr svarti hundurinn og glottir. Ég held að þessi vinna sé einhver öruggasta leiðin til að fremja hægt og kvalafullt sjálfsmorð. Að vinna 10 tíma á dag við flatbökur drepur niður sjálfið og eftir stendur hol skel - hvar eitt sinn bærðist glaðvært hjarta ungs drengs með stóra drauma og bjartar vonir. Ef uppfærslur á þessi bloggi eru stopular þá vitið þið allavega hvers vegna.

Athugasemdir: