Stofnað 2004

Veit ekki

Ég veit ekki til hvers ég var að búa þetta blogg til. Ég veit ekki hvað í hoppandi helvíti ég á að skrifa. Ég veit ekki hvort nokkur muni nokkurn tíma lesa þetta. Ég veit ekki hvort ég á nokkurn tíma eftir að nenna að skrifa eitthvað hérna í framtíðinni. En ég veit að mig langar í bjór. Og er það ekki það eina sem skiptir máli, þegar öllu er á botninn hvolft?

Athugasemdir: