Stofnað 2004

Myndasöfn

Þegar ég grúskaði gegnum myndirnar mínar til að finna mynd af Ella fyrir síðustu færslu sá ég hvað ég á mikið af alls konar tækifærismyndum sem er synd að deila ekki með heiminum. Þannig að núna er komið upp eitt myndasafn til að byrja með - rúmlega tveggja ára gamlar myndir úr útskriftarferð til Krítar. Þið getið nálgast safnið hérna til hliðar - nú eða bara hér. Það verður að viðurkennast að þetta eru ekki allar myndirnar sem teknar voru í ferðinni - margar myndanna eru grófar og ærumeiðandi og ákað ég að sleppa þeim úr til að vernda viðkvæmar sálir og saklausa einstaklinga. Ef þetta mælist vel fyrir er aldrei að vita nema maður skelli upp fleiri myndasöfnum.

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
Þetta færir mann aftur, ef maður myndi þá eitthvað eftir þessu. Good times, good times.
El-Varberg
18. október 2004 09:54