Stofnað 2004

Myndir

Jæja, þá er loksins komið að því: Myndirnar sem ég lofaði í seinasta pósti. Meira óspennandi hefðu þær varla getað orðið. Ég hef enn ekki haft rænu eða nennu til að taka vélina með í vinnuna, svo allar myndir af Domino's viðskiptavinum eða misþyrmdum flatbökum verða að bíða betri tíma. En ég lofa góðri myndaseríu helgaðri Domino's einhvern tímann í bráð - þar verða ef til vill gullmolar á borð við mynd af uppvöskunaraðstöðunni eða vaktstjóraskriftstofunni. En þangað til sú gósentíð rennur upp verður þetta að nægja. Þar sem heilar þrjár manneskjur svöruðu síðasta pósti ákvað ég að taka eina hugmynd frá hverri. Ég fann ekkert skordýr handa Silla (ég leitaði samt hátt og lágt um alla íbúðina), svo hundleiðinlegur hurðarhúnn varð að nægja. Bakhlið myndavélarinnar var svo lítið mál. Ég hefði þess vegna getað tekið mynd af kassanum utan af vélinni (en þar er einmitt mynd af bakhliðinni) án þess að fara á svig við þær reglur sem mér voru gefnar. En ég fann ekki kassann, svo þetta varð niðurstaðan. Elvar fær svo þessa fínu mynd af sér, en ég varð að svindla smávegis og nota gamla mynd, þar sem hann er utan seilingar í augnablikinu. Þess má til gamans geta að sama kvöld og þessi mynd var tekin (sem var einhvern tímann í mars á þessu ári) varð Stebbi fyrir líkamsárás. Þetta eru því sögulegar heimildir.   

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
Ég bað nú eiginlega um 3 myndir af mér, en þetta er góð byrjun.
Óli minn Atli og Helena er held ég að beila á mér svo að það virðist standa og falla með þér hvort ég komist lífs af þarna fyrir austan...
El-Varberg
14. október 2004 11:34 
Blogger Óli Sindri:
Ég er til í slaginn. Spauglaust (enda ég ekki þekktur fyrir gamansemi).
14. október 2004 16:56 
Anonymous Nafnlaus:
Geðveikur Hurðarhúnn!!!!
Sillinn
14. október 2004 17:51