Stofnað 2004

Sneddí

Já, þeir eru sniðugir hjá blogger.com. Ég kíki á bloggskilaboðapósthússsíðuna mína með samviskubit yfir því hversu lítið ég hef skrifað undanfarið, en þó algjörlega grunlaus um hvern fjárann ég eigi eiginlega að skrifa (vegna þess, eins og þið eigið að vita nú þegar, að ég er í vinnu sem drepur niður frumkvæði, hugmyndir, metnað, vilja og allt annað sem gott er í þessum heimi) og þá bjargar bloggerinn bara málunum fyrir mig með að koma með ábendingu:
Ask your readers to think of three photos they'd like to see posted to your blog. (Things around your house or whatever.) When you have enough requests, post them!
Er þetta ekki óendanlega frábærlega sniðug hugmynd? Mér fannst það líka. Komið nú með hugmyndir að einhverju sem þið viljið fá mynd af - hvað sem er; allt frá litlutáarnögl vinstri fótar til lausnar lífsgátunnar - ég skal mynda það fyrir ykkur. Þetta gefur mér líka ágætis tækifæri til að finna út hvort einhver lesi í raun þetta sorglega blogg mitt. Síðast þegar ég kíkti á (falda) teljarann var bara kominn ein heimsókn - frá Singapúr.

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
#1 bakhliðin á myndavélinni sem þú tekur myndirnar með. (Án þess að þú sjáist á myndinni eða notuð sé önnur vél til að taka myndina).

#2 mynd af fólki að taka á móti pitsu frá þér í vinnunni.

#3 mynd af fjörutíu og þremur.
2. október 2004 10:45 
Anonymous Nafnlaus:
Mynd af Domino´s pizzu sem búið er að misþyrma.
Mynd af hurðarhún.
Mynd af skordýri.
Drullastu síðan til Danmerkur!
Friður,
Silli
3. október 2004 14:35 
Anonymous Nafnlaus:
Hvernig væri að þú myndir taka mynd af mér, eða jafnvel þrjár. Það er alltaf vinsælt.

Elvar Berg
6. október 2004 12:44