Stofnað 2004

Leti

Já, ég er verulega latur bloggari. Það er hins vegar ekki vegna þess að ég hef lítið að segja, heldur aðallega vegna þess að ég er aldrei á netinu. Að borga fyrir ADSL slagar upp í að vera jafn mikil peningasóun fyrir mig og áðurnefnd málninga- og strigakaup (hef sem sagt ekki enn fest ódauðlega listaverkið mitt á striga). Þegar ég er ekki að vinna er ég yfirleitt sofandi, étandi, eða sinnandi öðrum grunnþörfum líkamlegrar starfsemi minnar. Þessa dagana er ég að reyna eftir fremsta megni að vera í 100% vinnu á Domino's og 85% vinnu á sambýli, auk nokkurra aukavakta á báðum stöðum. Og svo var ég að taka að mér að teikna nokkrar myndir í næstu Carminu, sem þarf víst að skila fyrir 15. desember. Ég hlýt náttúrulega að vera blússandi geðveikur. Þetta var tilgangslaus bloggfærsla með öllu, en þó kannski nokkru skárri en engin, eða öllu heldur væri engin færsla lakari. Ef engin færsla er verri en þessi, hlýtur þessi færsla að vera verst. En samt skárri en engin. Ég er farinn í rúmið.

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
Þú ert rusalegur, vinnur jafnvel meira en ég, en ekki samt á fleiri stöðum. Svo ég vinn. Elvar Berg
26. nóvember 2004 16:08 
Anonymous Nafnlaus:
Þú ert nú meiri kallinn!!!!
Djöfull er "Blússandi" töff orð!!!!! ;)

Blússandi klikkaður Sigvaldi
26. nóvember 2004 19:07