Þáttaskil
Í gær sagði ég upp vinnunni. Hvað gerist í framhaldinu hef ég ekki hugmynd um. Ég þarf allavega að vinna út nóvember, þar með talið eina megaviku sem hefst í næstu viku (það á ábyggilega að vera leyndarmál, en það er svo sem ekki eins og ég sé hræddur um að missa vinnuna).
Í öðrum fréttum er það helst að Búskmaðurinn var endurkjörinn sem forseti Bandaríkjanna, og ætti það svo sem ekki að koma neinum á óvart. Það er vonandi að Demókrötum takist að grafa upp almennilegan frambjóðanda fyrir næstu kosningar; það er í raun með ólíkindum að þessu krípi skuli hafa tekist að standa upp í hárinu á Bush. Segir sitt um yfirburðasigurinn sem Demókratar hefðu getað fagnað ef þeir hefðu teflt fram einhverjum af viti.