Stofnað 2004

Lífið...

...er eins og hafragrautsskál sem gleymdist á eldhúsbekknum í viku. Jamm, líf mitt er tilbreytingarsnautt, leiðinlegt og blátt áfram mannskemmandi. Ég bókstaflega verð að fara að gera eitthvað af viti - eitthvað róttækt. Það þýðir lítið að ætla að benda mér á að fara í sund, finna mér áhugamál eða reyna á annan hátt að gauka að mér einhverjum klausum úr sjálfshjálparbókum doktors Phil. Að tjasla eitthvað upp á þessa ömurlegu afsökun fyrir tilveru er svipað og að eiga vélarlausan bíl og kaupa á hann spoilerkitt og neon-ljós. Nei, ég þarf nýjan bíl. Djöfull var þetta ömurleg viðlíking. Hverjum er ekki skítsama um bíla? Ég þarf heldur ekkert nýjan bíl. Bíllinn minn er ágætur. Að vísu er hann á sumardekkjum (og ef eitthvað er að marka síðustu daga þá er ísöld í vændum), samlæsingin hefur sjálfstæðan vilja og bensínmælirinn fer ekki neðar en sem svarar hálfum tanki. Jú, og stundum endurstillir mælaborðsklukkan sig þegar ég ræsi fákinn. En það er enginn fullkominn. Nú sit ég klukkan hálfþrjú að nóttu við tölvuna, með fráhneppta skyrtu og hámandi í mig fullan poka af ódýrum sykurpúðum úr Krónunni. Þarf frekari sannana við varðandi ömurleika lífs míns? En stóra spurningin er; hvað á ég að gera, hvert á ég að fara? (Þetta voru að vísu tvær spurningar, en stórar samt sem áður). Ég hef ekki glóru. En til skemmri tíma litið er ég hins vegar að spá í að skella mér norður á bóginn eftir helgi, og eyða þá líklega þarnæstu helgi við drykkju og annan saurlifnað á Akureyri. Já, og meðan ég man, einhver vísir að gestabók er kominn upp þarna til hliðar. Ég er viðþolslaus af gleði.

Myndasöfn

Þegar ég grúskaði gegnum myndirnar mínar til að finna mynd af Ella fyrir síðustu færslu sá ég hvað ég á mikið af alls konar tækifærismyndum sem er synd að deila ekki með heiminum. Þannig að núna er komið upp eitt myndasafn til að byrja með - rúmlega tveggja ára gamlar myndir úr útskriftarferð til Krítar. Þið getið nálgast safnið hérna til hliðar - nú eða bara hér. Það verður að viðurkennast að þetta eru ekki allar myndirnar sem teknar voru í ferðinni - margar myndanna eru grófar og ærumeiðandi og ákað ég að sleppa þeim úr til að vernda viðkvæmar sálir og saklausa einstaklinga. Ef þetta mælist vel fyrir er aldrei að vita nema maður skelli upp fleiri myndasöfnum.

Myndir

Jæja, þá er loksins komið að því: Myndirnar sem ég lofaði í seinasta pósti. Meira óspennandi hefðu þær varla getað orðið. Ég hef enn ekki haft rænu eða nennu til að taka vélina með í vinnuna, svo allar myndir af Domino's viðskiptavinum eða misþyrmdum flatbökum verða að bíða betri tíma. En ég lofa góðri myndaseríu helgaðri Domino's einhvern tímann í bráð - þar verða ef til vill gullmolar á borð við mynd af uppvöskunaraðstöðunni eða vaktstjóraskriftstofunni. En þangað til sú gósentíð rennur upp verður þetta að nægja. Þar sem heilar þrjár manneskjur svöruðu síðasta pósti ákvað ég að taka eina hugmynd frá hverri. Ég fann ekkert skordýr handa Silla (ég leitaði samt hátt og lágt um alla íbúðina), svo hundleiðinlegur hurðarhúnn varð að nægja. Bakhlið myndavélarinnar var svo lítið mál. Ég hefði þess vegna getað tekið mynd af kassanum utan af vélinni (en þar er einmitt mynd af bakhliðinni) án þess að fara á svig við þær reglur sem mér voru gefnar. En ég fann ekki kassann, svo þetta varð niðurstaðan. Elvar fær svo þessa fínu mynd af sér, en ég varð að svindla smávegis og nota gamla mynd, þar sem hann er utan seilingar í augnablikinu. Þess má til gamans geta að sama kvöld og þessi mynd var tekin (sem var einhvern tímann í mars á þessu ári) varð Stebbi fyrir líkamsárás. Þetta eru því sögulegar heimildir.   

Sneddí

Já, þeir eru sniðugir hjá blogger.com. Ég kíki á bloggskilaboðapósthússsíðuna mína með samviskubit yfir því hversu lítið ég hef skrifað undanfarið, en þó algjörlega grunlaus um hvern fjárann ég eigi eiginlega að skrifa (vegna þess, eins og þið eigið að vita nú þegar, að ég er í vinnu sem drepur niður frumkvæði, hugmyndir, metnað, vilja og allt annað sem gott er í þessum heimi) og þá bjargar bloggerinn bara málunum fyrir mig með að koma með ábendingu:
Ask your readers to think of three photos they'd like to see posted to your blog. (Things around your house or whatever.) When you have enough requests, post them!
Er þetta ekki óendanlega frábærlega sniðug hugmynd? Mér fannst það líka. Komið nú með hugmyndir að einhverju sem þið viljið fá mynd af - hvað sem er; allt frá litlutáarnögl vinstri fótar til lausnar lífsgátunnar - ég skal mynda það fyrir ykkur. Þetta gefur mér líka ágætis tækifæri til að finna út hvort einhver lesi í raun þetta sorglega blogg mitt. Síðast þegar ég kíkti á (falda) teljarann var bara kominn ein heimsókn - frá Singapúr.