Stofnað 2004

Endurkoman

Jæja, 49 dagar - 7 vikur - 1,7 mánuðir síðan ég skrifaði síðast. Og í millitíðinni hafa jól komið og farið, nýtt ár runnið upp og ég byrjað í skóla. Já, tryggu lesendur (báðir), Ég hef hafið nám við hina miklu menntastofnun - Háskóla Íslands, þar sem ég mun líkast til vinna mér inn u.þ.b. 8 einingar í heimspekilegum fræðum þessa önnina. Það þarf samt að bíða betri tíma að lýsa hinum einstaka náunga sem mér veitist sá heiður að sitja námskeiðið Nýaldarheimspeki með, en þið megið óhikað hlakka til þess að heyra þá sögu. Að því gefnu að mér takist að gera honum nægilega góð skil í rituðu máli, því ég held að það sé fjandanum erfiðara. Hann er einfaldlega einstakur. Ég ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra í þetta skiptið; vildi bara minna á að ég er ekki dauður enn. Næsta færsla verður kynngimögnuð - já, ég dirfist að segja snilldarleg. Kannski. Í millitíðinni getið þið fylgst með spennandi ævintýrum Ella í Tælandi og Helenu og Atla í Evrópu. Sveiattan.

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
Hipp hipp hurra og mikid var, ekki thad ad eg hafi mikinn tima til ad vera ad lesa blogg annarra. eg er of upptekinn vid rutuferdir og hofskodanir. Nei annars er madur aldrei of upptekinn fyrir Ola sinn. Bid spenntur eftir heimspekisogunni, bid ad heilsa fra Laos. ciao en og their segja ekki herna.
Elvar Berg
2. febrúar 2005 05:49