Stofnað 2004

Baunaborg

Jæja, þá er það frágengið (var að vísu frágengið fyrir viku, en það ætti ekki að koma neinum á óvart að ég er latur bloggari) - Danmerkurferð þann 16. febrúar, eftir örfáa daga. Upphaflega hugmyndin var helgarferð frá fimmtudegi til mánudags, en einhvern veginn teygðist þetta um einn dag í hvora átt. Það gera þá 6 nætur í Danaveldi í taumlausri gleði. Eða eitthvað. Það er annars engin ferðaáætlun til staðar. Við Gísli fljúgum út kl. 7:30 á miðvikudaginn, og eftir það er allt óljóst. Líklega munum við hitta Silla og Stebba í Køben, og áreiðanlega mun ég drekka þó nokkuð af øli. Reyndar er ég búinn að ákveða það að frá stundinni sem ég stíg inn í fríhöfnina í Leifsstöð - og þar til ég verð stoppaður í tollinum á leiðinni heim (ég verð ábyggilega stoppaður í tollinum, það virðist vera óumflýjanlegt í utanlandsferðum mínum) - þá mun ekki líða sú mínúta að ég verði ekki með opinn bjór í hönd. Ég er ekki búinn að gera upp við mig hvort ég veiti sjálfum mér undanþágu frá þessari bjórreglu þegar ég sef. Líklega ekki. Enda hef ég ekki einu sinni hugmynd um hvar ég mun sofa, þannig að ég mun líklega hreiðra um mig fyrir utan brautarstöðina í Kaupmannahöfn með notalega hrísgrjónaælu ofan á mér og bjórflösku í lúkunni.

Athugasemdir:

Anonymous Elvar Berg:
Hurra, hurra, hurra fyrir Olafi og thessari dyrindis bloggfaerslu hans og megi mergar alika ef ekki svipadar ad gaedum fylgja i kjolfarid. Bid ad heilsa ur Taelandi vetrarfotum i Vietnam. Vonandi drekkuru meira i Danmorku en eg i Asiu.
15. febrúar 2005 09:58 
Anonymous Elvar:
Ekki virdist thu vera mikid ydnari vid thessar blogfaerslur frekar en tha sidustu.
26. febrúar 2005 00:57 
Anonymous Nafnlaus:
idnari
26. febrúar 2005 00:57 
Blogger Óli Sindri:
Fyrirgefðu innilega Elvar minn, ég skal reyna að bæta þér þetta upp einhvern veginn.
27. febrúar 2005 03:59