Hlaðan
Nú sit ég sem sagt í Mekka Háskólastúdentsins, Þjóðarbókhlöðunni, með fartölvuna sem ég keypti á föstudaginn. Yndislegur gripur; álgrá PowerBook (sjá mynd). Eftir um klukkutíma skokka ég yfir í Háskólabíó til að hlusta á fyrirlestur í heimspekilegum forspjallsvísindum. Þetta er svona u.þ.b. öll sú spenna sem er að finna í mínu lífi þessa dagana - tíminn líður með vinnu, skóla og svefni. Stefnan er samt sett á að reyna að komast til Danmerkur einhvern tíma kringum næstu mánaðamót og dreypa af dáyndisdögg í nokkra daga.

