Stofnað 2004

Á kunnri storð

Danmerkurferð yfirstaðin. Ágæt, hreint ágæt. Ferðaáætlunin hélst nokkuð vel, bjórinn var strax kominn í hönd við komuna í Leifsstöð og hélst þar nánast allan tímann. Hár hiti, beinverkir og almenn fársjúkheit ollu því samt að ölinu var sleppt á Kastrup flugvelli á leiðinni heim. Ég var sem sagt ekki stoppaður í tollinum, en ég fékk slæma flensu í staðinn og hef legið eins og mara í rúminu síðustu daga eftir að ég kom heim. Það er ýmist í ökkla eða eyra. Í þessu tilfelli hvort tveggja; hryllilegir ökklabeinverkir og viðbjóðsleg eyrnabólga. En ekki kvarta ég. Ferðin var fín. Tveir dagar í Kaupmannahöfn, aðallega við að þræða helstu vínstofurnar á daginn og liggja í makindum og horfa á frábæra sjónvarpsdagskrá TV Danmark þegar ölsölu var hætt. Síðan var förinni heitið til heimsborgarinnar Ebeltoft til að heilsa upp á Sigvalda og Stefán og um 100 aðra verulega tæpa kvikmyndagerðarmenn. Þar var legið í sjálfsalabjór, hendur voru hruflaðar, einhverjir timbruðust upp (ég nefni engin nöfn), en aftimbruðust eftir góðan slatta af ísköldu bensínstöðvaröli. Allt í allt góð ferð, en ég hef enga nennu til að útlista hana í smáatriðum. Sérstaklega þar sem um það bil 50% lesenda þessa bloggs er fólk sem var á staðnum. Hins vegar grunar mig að Gísli hafi á tímabili verið kominn með ógeð á ferðafélaga sínum. Held ég þó að steininn hafi tekið úr í ferjunni á bakaleiðinni, þegar ég fékk eftir sólarhringsvöku snert af sænsku veikinni. Sænska veikin er hryllilegt heilkenni sem lýsir sér þannig að manni finnst óhjákvæmilegt að tala einvörðungu sænsku. Þegar við bætist að sænskur orðaforði minn telur rétt um fjögur orð er útkoman líklega flest annað en fýsileg fyrir viðstadda. Fyrirgefðu Gísli. En Lúdóið var skemmtilegt. Nú er hins vegar kominn tími til að hafa áhyggjur af skólanum. Ég er búinn að missa úr lungann af önninni og hef ekki græna glóru hvar ég á að vera staddur í námsefninu. Í gær fékk ég póst sem minnti mig á að skilafrestur heimaverkefnis sem gildir að ég held 50% af einkunn minni í Nýaldarheimspeki rennur út á fimmtudaginn. Gott að vita það. Enn betra væri að vita eitthvað hvað þetta verkefni snýst um. En það hlýtur að koma með kalda vatninu.

Athugasemdir:

Anonymous Elvar Berg:
Same old, same old hja Ola minum. Sumir breytast aldrei. Sem er ekki verra i thessu tilfelli, oftast naer.
27. febrúar 2005 07:52 
Anonymous Elvar:
Eg skil ekki, commentid mitt kemur ekki inn en thegar eg aetla ad skrifa annad se eg thad alltaf. Eitt af furduverkum natturunar byst eg vid.
28. febrúar 2005 04:20 
Anonymous Stefán Loftsson:
Brjálad Lúdoid madur!!!!!! Og Trivial líka.
Rune og Matt bidja ad heilsa.
4. mars 2005 23:38