Stofnað 2004

Andvökur

En þó ekki. Aðallega stórfurðulegur svefn. Óreglulegt og ófyrirsjáanlegt svefmynstur mitt hefur valdið því að þegar ég á annað borð sef sækja að mér undarlegar draumfarir og tilfinningar. Þegar ég dotta á næturvöktunum er ég meðvitaður um að ég þarf að vera vakandi. Þetta veldur því að ég sofna aldrei almennilega, heldur móki einhvern veginn milli svefns og vöku; meðvitaður um að ég er sofandi. Ég upplifi þó eins konar drauma - óheppilega atburði sem ég ímynda mér að eigi sér stað rétt utan sjónsviðs míns. Þetta er mjög óþægileg tilfinning. Og ég heyri oft hljóð í þessu ástandi. Enn verri er þó svefnrofalömunin; þegar ég hrekk upp af þessu móki (oftast vegna einhvers sem átti sér stað í þessum hálfdraumi, en ég ímynda mér að eigi sér stað í alvörunni), en get hvorki hreyft legg né lið. Ekki einu sinni augnvöðvarnir vilja hreyfast; ég stari upp í loftið - reyni af alefli að lyfta handlegg, hreyfa tá, en ekkert tekst. Ég er fastur. Og þessi nagandi tilfinning um að eitthvað sé að eiga sér stað rétt utan þess sem ég sé ágerist enn. Þetta ástand virðist mér vara heila eilífð. Og nú er ég farinn að finna fyrir þessu líka þegar ég sef heima hjá mér. Mér líður eins og karakter í Martröð á Álmstræti. Ætli ég sé að verða geðveikur? Annað sem styður þá skoðun er það að ég hef yfirleitt staðið í þeirri trú að ég hafi gengið í Menntaskólann á Akureyri. Aðrar heimildir benda hins vegar til þess að ég hafi alls ekki verið þar, heldur hafi ég útskrifast sem stúdent frá FB fyrir tveim árum. Að minnsta kosti sendi HÍ mér tölvupóst um daginn þar sem stendur:
Stúdentspróf: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Félagsfræðibraut 2003
Varla lýgur Háskólinn.

Athugasemdir:

Anonymous Elvar:
Já, their aettu ad vita thad. Gott ad vita ad ther lídur svona vel kallinn minn. Thad yljar mér á koldum vetrarnóttum.
20. mars 2005 02:38 
Anonymous Silli:
Thad ljúga allir!....... Vertu svo duglegri ad skrifa.... minnst 1 sinni á dag.
23. mars 2005 17:46 
Anonymous Silli:
Bloggaðu!!!!!
7. apríl 2005 01:20 
Anonymous Elvar:
Oli minn er nu ekki kominn timi a nytt blogg. Og ja eg sa naestum nakvaemlega thegar thu commentadir a siduna mina. Ef thu hefdir verid a MSN hefdum vid getad spjallad. Later astarpungur.
9. apríl 2005 11:10