Kween
Ein utanlandsferð skipulögð - helgarferð til London í byrjun júlí, meðal annars með viðkomu á Queen tónleikum í Hyde Park. Ekki slæmt. Eða við skulum vona að það verði ekki slæmt, því þá neyðist ég til að drekkja sorgum mínum í hlandvolgum Guinness á einhverjum skítapöbb í Soho. Og þeir loka yfirleitt fyrir miðnætti, þannig að ég þarf þá að vera duglegur.
Í tilefni af því býð ég upp á
We are the Champions í flutningi William Hung.
Búinn að kíkja á tvær myndir í viðbót á hátíðinni.
The Woodsman með Kevin Bacon er allt í lagi. Ekkert frábær, en Fleskið leikur vel. Gef henni 3 stjörnur, af því ég er í góðu skapi.
Der Untergang er svo nokkrum klössum ofar. Snilldarlega gerð mynd, mjög vel unnin. Að vísu rétt tæpir 3 tímar, sem er ekkert spes ef maður fer á hana strax á eftir annarri mynd. En við getum nú varla kennt Hitler um það. Gef henni 4 til 4 og hálfa. Staðfest niðurstaða í lok hátíðar.
Næst á dagskrá er svo sænska soramyndin sem Hallgrímur Helgason gekk út af.
Svo er bara að skipuleggja hina utanlandsferðina. Ég er nokkuð ákveðinn í að reyna að komast í aðra á árinu, allar hugmyndir vel þegnar.