Stofnað 2004

Iss

Ég var að gæla við þá hugmynd að aka norður til Akureyrar í vikunni og vera fram yfir helgi - hitta fólk, drekka bjór, lenda í slagsmálum við Ólafsfirðinga og allt sem því tilheyrir. En svo virðist sem örlögin séu ekki hliðholl þessari ferðaáætlun, því þau tóku upp á að skemma bílinn minn. Í gærdag ætlaði ég í að rúnta út í búð á steingráa fáknum mínum, bakkaði úr stæðinu og sté á hemilinn. Fótstigið fór alveg niður í gólf, og hemlaglussi sprautaðist úr nýrifnu bremsuröri undir bílnum. Það fannst mér æðislegt. Nú er greyið komið inn í skúr hjá einhverjum mossfellskum bílgrúskara, og ég þarf líklega að punga út ríflega tveim tugum þúsunda til að fá hann aftur. Og þetta bætist við framrúðuskipti og fleira dútl sem þegar liggur fyrir að þurfi að ljúka við áður en hann fær skoðun. Fari það norður og niður sem.

Athugasemdir:

Anonymous Elvar:
Og síðan hvenær þarf maður bíl til að fara norður?
Svo á ég líka afmæli.
10. maí 2005 19:29 
Blogger Óli Sindri:
Það er nú ekki fyrr en á laugardaginn. Ef þú lofar að þú haldir upp á það almennilega er aldrei að vita nema ég láti mig hafa það að hendast norður. Kagginn er enda kominn í (sæmilegasta) lag núna.
11. maí 2005 02:07