Stofnað 2004

Hver býr í djúpinu...

...í ananas? Kominn aftur í þægilegu næturvaktirnar. Yndisleg vinna, miðað við Domino's stressið. Og miðað við margt annað. Sit með fartölvuna, hlusta á tónlist og uppfæri þessa bloggsíðu og fæ ágætlega borgað fyrir það. Ég held að nýja síðuútlitið sé komið. Verulega ófrumlegt, og eflaust ömurlegt, en samt ágætt að breyta til. Ég er svo andlaus að mér datt enginn smellinn titill í hug til að setja þarna efst, og endaði á að troða nafninu mínu þar aftur. Hörmung. Af hverju kemur mér aldrei neitt frumlegt í hug? Ég hugsa endurunnar hugsanir, ef ég hugsa þá eitthvað á annað borð. Oftast móki ég bara í gegnum lífið. Fáfræði er sæla. Verulega léleg þýðing á Ignorance is Bliss hjá mér. Eins og flest sem ég geri. Nei, nei, ég er nú ekki svona þunglyndur. En það reynast sannleikskorn í þessu. Bíllinn minn er skemmtilegur. Hann hefur sál. Ég veit ekki hvað sál er, en ég veit að bíllinn minn hefur hana. Ég nenni ekki að útskýra af hverju, sem þýðir að þessi málsgrein gæti vart verið tilgangslausari. En ef ég bæti við hana lottótölum síðasta laugardags öðlast hún aftur tilgang: 7, 21, 22, 24, 28 og 29. Ég elska ruslpóst. Ég kíki reglulega í ruslpóstmöppuna mína mér til skemmtunar. Í dag var þar til bréf með yfirskriftinni Do you want out sweet virgin girls? sem hljómaði svona (orðrétt):
Some kind of a comedian, are we? Beautiful russian prepainful girls here I do not pretend to know where many ignorant men are sure -- that is all that agnosticism means. We are the best very fast growing teeny porno site You are at enmity with yourself. Unique high access quality content Whenever our neighbor's house is on fire, it cannot be amiss for the engines to play a little on our own.
Tilgátur um hvað þetta bréf þýðir eru velkomnar í athugasemdakerfið. Ég er mjög forvitinn.

Athugasemdir:

Anonymous Sá Ingvi Labbaði Langt Inn:
Þetta er eitthvað dulmál. Ég er viss um það. Prófaðu að taka út einhverja stafi og sjá hvort eitthvað merkilegt komi ljós. CIA eru alltaf að senda mér dulmál með BT blaðinu.... Hringdu í BT!
1. júní 2005 16:28 
Anonymous Snoskur & froskur:
The meaning is very clear.

If you want a discourse og interactive weather display while pondering about the weak and weary cognitive powers of a miraculous mammal, you are bound to commence on your voyage of imperative means.
2. júní 2005 12:31 
Anonymous El-Varberg:
Ég prófaði að taka öll i úr og fékk þetta: iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Hvort þetta segir þér eitthvað veit ég ekki.
5. júní 2005 18:35