Stofnað 2004

Piss

Stundum er erfitt að pissa. Þegar maður er í tíma- eða mannþröng virðist blaðran stundum fara í verkfall og dágóð stund getur liðið þar til eðlilegt streymi kemst á. Þess vegna hef ég undanfarna mánuði verið að gera tilraun á sjálfum mér með skilyrta svörun. Eða hvað sem þetta á annars að kallast. Lykilorðið er Pavlov og hundur. Ég hef sem sagt vanið mig á að smella fingrunum þegar ég stend við klósettið og er að byrja að dæla. Markmiðið er að í framtíðinni geti ég - í tilfellum eins og nefnd eru að ofan - smellt fingrum og komið bununni af stað. Ég er ekki frá því að þetta virki.

Athugasemdir:

Blogger larush:
já, þetta lýst mér vel á hjá ólafi sindra.. ekki svo vitlaust, reyndu svo að búa til þessa svörun í töflu formi og selja fólki hana! þá verður þú múlti-milljón-skrilljóner!
2. september 2005 15:38 
Anonymous Elvar:
Einn vankantur á þessu, passaðu þig bara í góðu glensi að fara ekki að smella fingrum eins og til dæmis við hlustun á góðum Queen slagara.
6. september 2005 09:50 
Anonymous Elvar:
Ertu lifandi?
28. september 2005 13:48 
Blogger larush:
hvaða hvaða.. óli ég fer oft á dag inn á þessa síðu og það er aldrei neitt nýtt... ég er að hugsa um að gera moggann að upphafsíðunni minni í staðinn:)
29. september 2005 20:57