Stofnað 2004

Arg

Ég er við það að verða hoppandi pirraður yfir vinnunni minni. Vinnan er svo sem ágæt, en það virðist alltaf hitta þannig á að ég er að vinna þegar eitthvað merkilegt gerist, og svo þegar ég fer í frí í viku er allt dautt og ekkert um að vera. Októberfest? Er að vinna. Iceland Airwaves? Vinnuvika hjá mér. Árshátíð í vinnunni? Nei, hver skollinn - er ég ekki á næturvakt. Jólahlaðborð? Gettu. Áramót? Jú, jú, þú mátt bölva þér upp á það. Lag dagsins: Say It's Not True. Queen og Paul Rodgers. Af tónleikum fyrr á árinu. Sungið af Roger Taylor. Samið fyrir Nelson Mandela. Í minningu Freddie Mercury. Stolið og sett ólöglega á Netið af Ólafi Sindra.

Athugasemdir:

Anonymous atli:
ég á inni fyllerí með þér ólafur sindri eftir að þú reyndir að ná af mér þegar ég var trallandi hress í fimmtugs afmæli hjá tengdó. hér með býð ég þér að koma inn um hurðina að íbúðinni minni og inn í íbúðina mína og fara þar úr skónum hvenær sem þér sýnist og drekka bjór með mér og ræða við mig um ýmislegt, nei, ég krefst þess!
6. október 2005 18:42 
Anonymous Elvar:
Bíbobbelúla, Atli þú ert ekki sá eini sem krefst einhvers af honum Ólafi, kannski við sláum þessu upp í allsherjar kæruleysi og sötrum bjór saman við tækifæri. Já það væri ekki vitlaust.
7. október 2005 18:43