Stofnað 2004

Þið báðuð um það...

Ég veit ekki hvort ég fyrirlít sjálfan mig meira fyrir að vera svona lélegur bloggari, eða fyrir að lifa svo óáhugaverðu lífi að ekkert er til að blogga um. Hér er samt ýmislegt sem gerst hefur og ég hef ekki bloggað um, í tímaröð frá hinu elsta til hins nýjasta, og ríkulega myndskreytt. Ég keypti mér bíl. Nánar tiltekið sænskan skriðdreka; Volvo 244 GL frá árinu 1981. Þetta var gullfallegur, niðurgangslitur múrsteinn, sem mér þótti ansi skemmtilegur. Hann var meira að segja sjálfskiptur, og frekar lítið ekinn, sér í lagi miðað við þá staðreynd að gripurinn var tveimur árum eldri en ég sjálfur. Þetta gerðist í byrjun júlímánaðar. Nokkrum dögum seinna var svo komið að utanlandsferðinni sem ég hef imprað á hér á síðunni áður. Ég og Ragnar bróðir skruppum til London að morgni 7. júlí 2005. Athugulir lesendur hafa kannski áttað sig á því að það er sami dagur og nokkrir arabar frá Leeds ákváðu að athuga sprengjuþol neðanjarðarlesta Lundúnaborgar. Enda varð þetta ansi merkileg ferð fyrir margra hluta sakir. Á föstudeginum, 8. júlí, áttu Queen að halda tónleika í Hyde Park. Hins vegar var þeim frestað um viku í kjölfar hryðjuverkanna. Og við áttum að fljúga heim á þriðjudeginum, 12. júlí. Það var því bara um eitt að ræða, og dvölin var snarlega lengd úr 5 dögum í 10 svo aðalmarkmið ferðarinnar næðist. Sem var í raun alls ekki svo slæmt, því 5 dagar í London er allt of stuttur tími. Í London fæst nefnilega bjór. Og enskt öl. Og nautakjöt. Svo er líka eitthvað um sögufræga staði og eitthvað, en það er að sjálfsögðu ekki hálft eins merkilegt og bjórinn. Og enska ölið. Og geðveika nautakjötið. Ef ég fæ ekki Creutzfeld Jacob eftir þessa ferð fæ ég hann aldrei. Til að hugga daprar sálir og hita upp fyrir tónleikana sem var seinkað fórum við á We Will Rock You söngleikinn á West End. Venjulega fæ ég grænar bólur og fjólublá sortuæxli af svona klisjukenndum söngleikjum (sem ég gerði svo sannarlega nokkrum dögum seinna á hroðaverkinu Chicago með Brooke Shields í aðalhlutverki) - en þessi söngleikur var hins vegar hin fínasta skemmtun og fullkomlega ferðarinnar virði. Til að hita enn meira upp í Queen-katlinum fyrir tónleikana litum við svo inn á Tate-safnið og kíktum meðal annars á The Fairy Feller's Master-Stroke málverkið eftir Richard Dadd, sem Freddie Mercury samdi einmitt lag upp úr árið 1974. Magnað stöff. Næstsíðasta daginn var svo loksins komið að hápunktinum; að sjá hina goðsagnakenndu Queen troða upp ásamt örverpinu Paul Rodgers í Hyde Park. Tónleikarnir voru hrein snilld, þrátt fyrir nokkra örlitla annmarka, sem fyrst og fremst sköpuðust vegna þess að Paul Rodgers hefur engan skilning á hópsöng eða hvernig á að gleðja mannfjölda yfir höfuð (líklega vegna þess að hann hefur aldrei sungið fyrir fleiri en 15 manns í reykmettuðum næturklúbbi, fyrr en núna). En hlutverk hans á tónleikunum var sem betur fer minna en jafnvel ég þorði að vona. Allt í allt fínasti endir á enn betri ferð. Stuttu eftir heimkomuna var svo aftur komið að mér að fara að vinna. Ég gæti svo sem bloggað heilan helling um ýmislegt sem gerist í vinnunni, ef ekki væri fyrir það að ég skrifaði undir samning þegar ég byrjaði sem skyldar mig til að þegja. Svona er nú starfið mitt mikilvægt. Í byrjun ágúst skrapp ég norður á Fiskidaginn mikla, nokkrar helgar eftir það drakk ég bjór, og þónokkra virka daga (og morgna) líka. Stuttu eftir fiskiferðina seldi ég svo barnaskítslita Volvoinn fyrir 1,6 falda þá upphæð sem ég keypti hann á, og var orðinn bíllaus á ný. En um síðustu mánaðarmót sló ég til og keypti bíl sem var ekki búið að framleiða þegar Berlínarmúrin féll, né þegar Cyndi Lauper átti síðast lag á vinsældalista. 1998 árgerðina af Mitsubishi Galant. Í grófum dráttum er þetta sem sagt líf mitt síðan ég skrifaði síðast eitthvað af viti hérna inn. Að vísu tel ég ekki með nokkur skemmtileg fyllerí, sér í lagi ansi gott trúnaðarskeið með Stebba á Akureyri, hryllilega fullan Ólaf á Dalvík og margt fleira, en það verður bara að bíða betri tíma. Eða þess að það verði endurtekið eða jafnvel toppað. Hafið svo það. Og hættið að kvarta.

Athugasemdir:

Blogger Vilborg:
Ítarlegri fylleríissögur! Ef minnisleysi hrjáir mann þá er alltaf hægt að segja frá því sem maður heldur að hafi gerst. Annars gaman að sjá að þú lifir enn. Yo Vilborg gamla bekkjarsystir frá því í þriðja bekk í menntaskóla.
1. október 2005 12:23 
Blogger larush:
jehérna hér.. takk fyrir að blogga og ég biðst afsökunar á því að hafa verið leiðinlegur í síðasta commenti:)
1. október 2005 19:12 
Anonymous Elvar:
Ég biðst ekki afsökunar.
Ég segi þér hverjir hafa fengið klammara og þú segir mér frá sambýlingum. En fyrst skrifum við undir samning þar sem stendur að ef við segjum einhverjum öðrum þá séum við rotin egg og lúsablésar og stenst það fyllilega lög og þú verður ekki rekinn né ég lögsóttur. Bulletproof.
Satt og sannað
3. október 2005 13:17 
Blogger Óli Sindri:
Alveg óþarfi að biðjast afsökunar Lárus minn. Ég gat bara ekki haft það á samviskunni að vera valdur að því að þú settir Moggann sem upphafssíðu.

Já Elli, við þurfum að hittast yfir köldum humlasafa og skiptast á krassandi vinnusögum, ég hef kynnt mér hugmynd þína og mér sýnist hún fyllilega standast lög á Austur-Tímor. Er það ekki annars þar sem málið myndi vera höfðað?

Og alltaf gaman að sjá/heyra/lesa þig Vilborg mín. Ég skal reyna að rifja upp eða skálda nokkrar fylleríssögur handa þér í framtíðinni. Mér dettur strax í hug atburðarrás þar sem þú reynir að fá mig til að kaupa mat á Tikk Takk fyrir stolið krítarkort sem þú hefur í fórum þínum. Verst að það kom synjun.
6. október 2005 10:29