Raflát

Fallegi, blýantsgrái iMakkinn í næsta herbergi varð bráðkvaddur í nótt. Ég slökkti á honum í gærkvöldi áður en ég fór í vinnuna, þar sem snepill frá Orkuveituapparatinu hafði boðað rafmagnsleysi síðustu nótt. Annars hefur hann fengið að malla óáreittur svo dögum, vikum og mánuðum skiptir. Þegar ég svo freista þess að vekja hann aftur í morgun - þrýsti munúðarfullt á litla hnappinn - er hann látinn. Ljósið logar örstutt, og lágværir smellir heyrast í hátölurunum. Að öllum líkindum er um að ræða viðgerð upp á 35.000 krónur eða svo - og það á tölvu hverrar markaðsvirði í dag er réttur fimmtungur af því. Sveiattan og synd að leggja þessari 6 ára hetju sem hefur þjónað mér svo vel. Saman brölluðum við ýmislegt; skrifuðum bók og sögur, fleygðum saman ritgerðum marga nóttina í MA og útbjuggum verkefni í HR. Vöfruðum um Netið, lékum okkur, hlustuðum á tónlist og höfðum það kósí. En nú er því lokið. Það er altént hægt að hugga sig við að hann fór í friði - og átti rólegt ævikvöld síðustu mánuðina sína.
Þetta þýðir að öll lög sem ég hef sett inn á síðuna til þessa, og ef til vill eitthvað fleira, eru hætt að virka. iMakkinn trausti var vefþjónninn sem umrætt dót var geymt á. Einnig þýðir þetta að skálmöld ríkir á heimilinu þar sem mamma kemst ekki í að leggja kapal, skjóta kúlur og dunda við fleira uppbyggilegt í þeim dúr.
Hvíl í friði.