Endurkoman
Jæja, 49 dagar - 7 vikur - 1,7 mánuðir síðan ég skrifaði síðast. Og í millitíðinni hafa jól komið og farið, nýtt ár runnið upp og ég byrjað í skóla. Já, tryggu lesendur (báðir), Ég hef hafið nám við hina miklu menntastofnun - Háskóla Íslands, þar sem ég mun líkast til vinna mér inn u.þ.b. 8 einingar í heimspekilegum fræðum þessa önnina.
Það þarf samt að bíða betri tíma að lýsa hinum einstaka náunga sem mér veitist sá heiður að sitja námskeiðið
Nýaldarheimspeki með, en þið megið óhikað hlakka til þess að heyra þá sögu. Að því gefnu að mér takist að gera honum nægilega góð skil í rituðu máli, því ég held að það sé fjandanum erfiðara. Hann er einfaldlega einstakur.
Ég ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra í þetta skiptið; vildi bara minna á að ég er ekki dauður enn. Næsta færsla verður kynngimögnuð - já, ég dirfist að segja
snilldarleg. Kannski.
Í millitíðinni getið þið fylgst með spennandi ævintýrum
Ella í Tælandi og
Helenu og Atla í Evrópu. Sveiattan.