Stofnađ 2004

Andvökur

En ţó ekki. Ađallega stórfurđulegur svefn. Óreglulegt og ófyrirsjáanlegt svefmynstur mitt hefur valdiđ ţví ađ ţegar ég á annađ borđ sef sćkja ađ mér undarlegar draumfarir og tilfinningar. Ţegar ég dotta á nćturvöktunum er ég međvitađur um ađ ég ţarf ađ vera vakandi. Ţetta veldur ţví ađ ég sofna aldrei almennilega, heldur móki einhvern veginn milli svefns og vöku; međvitađur um ađ ég er sofandi. Ég upplifi ţó eins konar drauma - óheppilega atburđi sem ég ímynda mér ađ eigi sér stađ rétt utan sjónsviđs míns. Ţetta er mjög óţćgileg tilfinning. Og ég heyri oft hljóđ í ţessu ástandi. Enn verri er ţó svefnrofalömunin; ţegar ég hrekk upp af ţessu móki (oftast vegna einhvers sem átti sér stađ í ţessum hálfdraumi, en ég ímynda mér ađ eigi sér stađ í alvörunni), en get hvorki hreyft legg né liđ. Ekki einu sinni augnvöđvarnir vilja hreyfast; ég stari upp í loftiđ - reyni af alefli ađ lyfta handlegg, hreyfa tá, en ekkert tekst. Ég er fastur. Og ţessi nagandi tilfinning um ađ eitthvađ sé ađ eiga sér stađ rétt utan ţess sem ég sé ágerist enn. Ţetta ástand virđist mér vara heila eilífđ. Og nú er ég farinn ađ finna fyrir ţessu líka ţegar ég sef heima hjá mér. Mér líđur eins og karakter í Martröđ á Álmstrćti. Ćtli ég sé ađ verđa geđveikur? Annađ sem styđur ţá skođun er ţađ ađ ég hef yfirleitt stađiđ í ţeirri trú ađ ég hafi gengiđ í Menntaskólann á Akureyri. Ađrar heimildir benda hins vegar til ţess ađ ég hafi alls ekki veriđ ţar, heldur hafi ég útskrifast sem stúdent frá FB fyrir tveim árum. Ađ minnsta kosti sendi HÍ mér tölvupóst um daginn ţar sem stendur:
Stúdentspróf: Fjölbrautaskólinn í Breiđholti, Félagsfrćđibraut 2003
Varla lýgur Háskólinn.