Stofnað 2004

Páfuglar

Þegar ég var kríli frétti ég að von væri á einhverju fyrirbæri til landsins sem kallað væri páfi. Mér datt strax í hug einhvers konar páfagaukur og skildi ekki hvers vegna allir voru að gera svona mikið mál úr atburðinum. Þetta hlaut að vera stórmerkilegur fugl, og glæsilegur. Svo man ég eftir vonbrigðunum þegar ég sá þennan páfa spásséra út úr flugvélinni á sumarmánuðum 1989 og smella einum blautum á malbikið. Mér fannst sem heimurinn hryndi, sakleysi mitt væri glatað, og allir hefðu logið að mér. Þetta síðasta var að vísu lygi. En merkilegur fannst mér hann samt ekki, páfagaukurinn. Og nú er hann dauður, og nýr hefur verið boðaður með bjöllum og reyk. Sá er háaldraður þýskur kvenhatari með sokkin augu og fyrrverandi fótgönguliði Hitlers-æskunnar. Vel valið. Það vantaði alla spennu í embættið, Ég vona bara að Rannsóknarrétturinn verði endurvakinn og skipulagðar nornaveiðar hefjist á ný. Það er augljóst mál að nornir hafa fengið að vaða uppi óáreittar allt of lengi. Svo lýsi ég frati á Little Britain. Í svipuðum klassa og Spaugstofan en samt hampað eins og sneiddu brauði. Hnuss.

Kween

Ein utanlandsferð skipulögð - helgarferð til London í byrjun júlí, meðal annars með viðkomu á Queen tónleikum í Hyde Park. Ekki slæmt. Eða við skulum vona að það verði ekki slæmt, því þá neyðist ég til að drekkja sorgum mínum í hlandvolgum Guinness á einhverjum skítapöbb í Soho. Og þeir loka yfirleitt fyrir miðnætti, þannig að ég þarf þá að vera duglegur. Í tilefni af því býð ég upp á We are the Champions í flutningi William Hung. Búinn að kíkja á tvær myndir í viðbót á hátíðinni. The Woodsman með Kevin Bacon er allt í lagi. Ekkert frábær, en Fleskið leikur vel. Gef henni 3 stjörnur, af því ég er í góðu skapi. Der Untergang er svo nokkrum klössum ofar. Snilldarlega gerð mynd, mjög vel unnin. Að vísu rétt tæpir 3 tímar, sem er ekkert spes ef maður fer á hana strax á eftir annarri mynd. En við getum nú varla kennt Hitler um það. Gef henni 4 til 4 og hálfa. Staðfest niðurstaða í lok hátíðar. Næst á dagskrá er svo sænska soramyndin sem Hallgrímur Helgason gekk út af. Svo er bara að skipuleggja hina utanlandsferðina. Ég er nokkuð ákveðinn í að reyna að komast í aðra á árinu, allar hugmyndir vel þegnar.

The Environment

A Report on Current Environmental Affairs - Dedicated to Elvar Berg. The Environment is all around us. Your backyard is our environment. When you leave your filthy toys and other stuff in the backyard, you're polluting my environment, and acting like an inconsiderate prick. Stop it. The Environment is also above us. The sky is our Environment. God lives in the Skies. God - being a perfect creature - must possess all qualities humans possess, and then some. Seeing that, he therefore must possess the quality to dispose of feces and urine, thus polluting the skies. Our skies. But the Environment is more than just your backyard and God's. The Environment is everything. Everything that's not you, is your environment. I am your environmet. You are mine. Environmentalists, wanting to control their surroundings, are therefore trying to control you and me. Environmentalists long to become omnipotent; their desire is to dictate what you, me, and everyone and everything do and think. Is that OK? If we agree to environmental points of view, we are agreeing to being owned - controlled. The single most dangerous aspect of contemporary society must be The Environmentalist. That wolf in sheep's wool. He must be stopped. That selfish control freak of a twat must be eliminated once and for all, to the extent that every man can safely say that he is acting for himself, without consideration for his surroundings. Only then can we be free.

Bréf frá fortíðinni

Fékk þetta skemmtilega bréf í morgun: From: thepast@futureme.org Subject: Bréf frá fortíðinni (this message was composed on Mon, Apr 12, 2004) Bú! Þetta er sent fyrir akkúrat ári síðan, ef allt gekk að óskum. Magnað, ekki satt? Hvaða skemmtilegu hluti skyldir þú vera að brasa þegar þú færð þetta? Enginn veit. Þú.

Efnahefnirinn

Lítið að frétta. Lífið gengur sinn vanagang, býst ég við. Skrapp norður um síðustu helgi, þar sem ég hitti nokkra fjölskyldumeðlimi, drakk meira en nokkra bjóra og varð mér til skammar í pöbbaspurningakeppni á Dalvík. Endaði síðan á að skilja bílinn minn eftir fyrir norðan með bilað púst. Skili hann samt ekki eftir bara út af pústinu, heldur aðallega vegna þess að eftir frámunalega góða tíð tók veðrið upp á því að kólna, heiðarnar lagði, og ég var strandaglópur á sumardekkjunum mínum. Flaug því suður, og samdi við þau gömlu, sem áttu leið norður þessa helgi í fermingarveislu, um að þau kæmu honum heilum heim annað kvöld. Annars er mögnuð kvikmyndahátíð hafin hérna, urmull af góðum myndum. Held að það séu 65 myndir á hátíðinni, og þar af einhverjar 50 frumsýningar. Til gamans má geta þess að þema hátíðarinnar er Troma (sex eða sjö Troma myndir á hátíðinni), og situr Lloyd Kaufman fyrir svörum eftir nokkrar sýningar á Citizen Toxie núna um helgina. Því miður er ég að vinna og kemst því ekki á þessar kvöldsýningar. Ég skellti mér á Hotel Rwanda í dag, og keypti mér í leiðinni 10 mynda passa á hátíðina. Rwanda var fín, gef henni þrjár og hálfa stjörnu, sem er mjög gott á minn mælikvarða. Þessi hálfa stjarna er samt aðallega vegna þess að Bobby Fischer sat við hliðina á mér í bíóinu, sem var einstaklega gefandi reynsla. Það hlakkaði mjög í honum þegar Vesturlöndin, og þá sérstaklega Bandaríkin voru sýnd í slæmu ljósi. Hann var þarna staddur með yfiröryrkjanum Garðari Sverris, og virtust þeir kumpánar skemmta sér hið besta. Ég er nú þegar búinn að ráðstafa flestum myndunum á passanum mínum, t.a.m. er nokkuð ljóst að ég ætla að sjá nýju Moodysson myndina, Ett hål i mit hjärta og mannlegu hlið Hitlers í Der Untergang. Svo var ég búinn að hringa utan um margt fleira í dagskránni, en hef ekki tíma né áhuga að rifja það upp að svo stöddu. Nú þarf ég nefnilega að tygja mig af stað í vinnuna. Lifið heil.