Stofnað 2004

Síðubreytingar

Það er óþarfi að láta sér bregða þó þessi síða líti út eins heimasíðuverkefni hjá 8. bekkingi þessa dagana; ég er sem sagt að taka hana sundur, endurgera og hanna nýtt útlit. Ég hef þegar lokið við að endurskrifa Blogger-síðusniðið mitt svo það sé löglegt XHTML 1.0, og er að vinna í að byggja upp CSS 2 stílsnið til að fylgja því. CSS skráin mun tilgreina alla útlitsþætti síðunnar, þannig að útlit og innihald sé fullkomlega aðskilið. Ef einhver skildi ofangreint á sá hinn sami hrós skilið. Í stuttu máli er ég að endurhanna síðuna að gamni og uppfæra í leiðinni vefsíðugerðarkunnáttu mína, sem á rætur að rekja aftur til 1996 eða svo. Annars fór ég norður um daginn, líkt og áætlað var, eins og þorri lesenda þessarar síðu veit gjörla nú þegar. Ég er enn með vott af aumum vöðvum eftir fótboltann á sunnudagskvöldinu. Ég er í hryllilegu formi. En það var hressandi kvöld í góðum félagsskap sem þarf að endurtaka við fyrsta tækifæri. Aðrir hlutar ferðarinnar voru ekki síðri, afmælisteiti Ella og bæjarferðin í kjölfarið voru hvort tveggja vel heppnaðir atburðir, en þó litaðir af því að afmælisbarnið sjálft var rúmfast með bleikt auga. Síðustu þrjú kvöld hef ég svo staðið í ökklaháum haugum af maísmjöli og raðað kryddpylsu á brauðhleifa, eða mokað sams konar - en heitari - hleifum af færibandi og ofan í pappakassa. Ég samþykkti með öðrum orðum að taka megavikutörn á Domino's. Það er áhugavert. Ég man vel núna af hverju ég hætti. En þetta er skemmtilegt í hófi. Nokkur hundruð flatbökur afgreiddar á hverjum hálftíma. Röð af fólki sem nær langt út á götu. Ég skil ekki hvaða múgsefjun verður til þess að öllum finnist þeir verði að éta pizzur þessar fjórar vikur á ári sem megavikur eru. Þúsundkrónatilboð eru t.a.m. alla daga ársins á fjöldamörgum öðrum pizzastöðum. Og Domino's pizzur eru langt frá því að vera í einhverjum sérflokki hvað bragð eða gæði varðar. Að ég tali nú ekki um í megavikum, þegar góðar líkur eru á að sveittur nýliði - sem á samtals 3 klukkutíma að baki við pizzugerð - hafi skóflað álegginu ofan á pizzuna þína, hún hafi aukinheldur verið með þistilhjörtum í staðinn fyrir pepperóní, hafi rekist í ofninn og osturinn hrunið af, sé skorin í 7 misstórar sneiðar, sett í vitlausan kassa og loks afhent konunni á undan þér í röðinni. Jæja, ég er farinn að sofa. Þarf að hvíla mig fyrir næstu Domino's vakt; 4 kvöld eftir. Suss.

Iss

Ég var að gæla við þá hugmynd að aka norður til Akureyrar í vikunni og vera fram yfir helgi - hitta fólk, drekka bjór, lenda í slagsmálum við Ólafsfirðinga og allt sem því tilheyrir. En svo virðist sem örlögin séu ekki hliðholl þessari ferðaáætlun, því þau tóku upp á að skemma bílinn minn. Í gærdag ætlaði ég í að rúnta út í búð á steingráa fáknum mínum, bakkaði úr stæðinu og sté á hemilinn. Fótstigið fór alveg niður í gólf, og hemlaglussi sprautaðist úr nýrifnu bremsuröri undir bílnum. Það fannst mér æðislegt. Nú er greyið komið inn í skúr hjá einhverjum mossfellskum bílgrúskara, og ég þarf líklega að punga út ríflega tveim tugum þúsunda til að fá hann aftur. Og þetta bætist við framrúðuskipti og fleira dútl sem þegar liggur fyrir að þurfi að ljúka við áður en hann fær skoðun. Fari það norður og niður sem.