12.08.2004 - 13.06.2005

Kannski frekar kaldhæðnislegt í ljósi síðstu færslu, þar sem hann er dásamaður og fjálglega lýst hversu góðu formi hann er í. En eftir tæpt ár í minn vörslu er steingrái, fallegi bíllinn minn sem sagt allur. Sem betur er ég það þó ekki, þó það sé í raun með ólíkindum.
En þið hefðuð átt að sjá hinn.
Fram og aftur blindgötuna
Ætla að dúlla mér norður á bóginn í dag. Bíllinn var að koma úr skoðun. Fékk að vísu endurskoðun út á einhvern tittlingaskít og smáræði, en fákurinn er í toppstandi þrátt fyrir það og mun rjúka í gegnum skoðun þegar ég hef kippt þessu í liðinn. Þangað til ætla ég norður á kagganum. Kallinn er farinn að skrifa eins og súkkulaðihnakki. Dauðans.
Ég fer fram á að allir sem ég þekki fyrir norðan, og margir sem ég þekki ekki, taki frá næstu helgi fyrir viðurstyggilegt fyllerí. Eða te- og skonsuboð - ég hef ekki ákveðið hvort það verður.
Og nú ætla ég að pakka niður, taka bensín og leggja í hann.
Lag dagsins:
The Office með Diffusion.
Hver býr í djúpinu...
...í ananas?
Kominn aftur í þægilegu næturvaktirnar. Yndisleg vinna, miðað við Domino's stressið. Og miðað við margt annað. Sit með fartölvuna, hlusta á tónlist og uppfæri þessa bloggsíðu og fæ ágætlega borgað fyrir það.
Ég held að nýja síðuútlitið sé komið. Verulega ófrumlegt, og eflaust ömurlegt, en samt ágætt að breyta til. Ég er svo andlaus að mér datt enginn smellinn titill í hug til að setja þarna efst, og endaði á að troða nafninu mínu þar aftur. Hörmung. Af hverju kemur mér aldrei neitt frumlegt í hug? Ég hugsa endurunnar hugsanir, ef ég hugsa þá eitthvað á annað borð. Oftast móki ég bara í gegnum lífið. Fáfræði er sæla. Verulega léleg þýðing á
Ignorance is Bliss hjá mér. Eins og flest sem ég geri.
Nei, nei, ég er nú ekki svona þunglyndur. En það reynast sannleikskorn í þessu.
Bíllinn minn er skemmtilegur. Hann hefur sál. Ég veit ekki hvað sál er, en ég veit að bíllinn minn hefur hana. Ég nenni ekki að útskýra af hverju, sem þýðir að þessi málsgrein gæti vart verið tilgangslausari. En ef ég bæti við hana lottótölum síðasta laugardags öðlast hún aftur tilgang: 7, 21, 22, 24, 28 og 29.
Ég elska ruslpóst. Ég kíki reglulega í ruslpóstmöppuna mína mér til skemmtunar. Í dag var þar til bréf með yfirskriftinni
Do you want out sweet virgin girls? sem hljómaði svona (orðrétt):
Some kind of a comedian, are we?
Beautiful russian prepainful girls here
I do not pretend to know where many ignorant men are sure -- that is all that agnosticism means.
We are the best very fast growing
teeny porno site
You are at enmity with yourself.
Unique high access quality content
Whenever our neighbor's house is on fire, it cannot be amiss for the engines to play a little on our own.
Tilgátur um hvað þetta bréf þýðir eru velkomnar í athugasemdakerfið. Ég er mjög forvitinn.