Stofnað 2004

Sniff

Jæja, þá er ég formlega búinn að selja VÍS bílinn minn. Þrjá fjórðu af honum, það er að segja. Ég var sem sagt dæmdur í 75% rétti, og ætli maður verði ekki að vera nokkuð sáttur við það. Ég keypti bílinn á 170.000 kall, fékk 95.000 út úr aftanákeyrslu í desember og 175.000 núna. Síðan bætist við 25% af því sem hann selst á á uppboði í næstu viku - eitthvað algjört smotterí. Þegar upp er staðið hef ég keyrt bílinn í tæpt ár og grætt 100 þúsund kall á því. Gæti verið verra. En það þýðir hins vegar að leitin er hafin á ný. Ef einhver hinna fjöldamörgu lesenda þessarar síðu veit um álitlegan bíl á sanngjörnu verði handa mér er hinum sama velkomið að láta mig vita. Að vísu skal það tekið fram að ég er frekar kröfuharður þegar kemur að bílum. Ég vil helst fólksbíl af stærri gerðinni (ekki skutbíl), sjálfskiptan, vel hljóðeinangraðan, 2 lítra vél eða stærri, óryðgaðan og vel útlítandi. Og þetta allt saman vil ég helst ekki þurfa að borga meira en 200.000 kall fyrir á borðið. Hey, það tókst síðast. Næsta mál á dagskrá er svo heilagt stríð gegn lögregluembættinu á Blönduósi. Meira um það síðar. Ég á bara þrjár vaktir eftir í sumarfrí. Glæsilegt. Og eftir tæpa viku eru það Lundúnir og risatónleikar í Hyde Park. Að vísu ekki Live8 skrumið - helvítis yfirlætisfulli Geldof - heldur dreggjarnar af Queen og einhver útbrunninn gaukur að syngja. Djöfull verður það magnað. Svo virðist mér Blogger eitthvað búnir að fokka upp síðunni minni. Fari þeir norður og niður sem. Nenni ekki að laga það.