Tvöþúsundogsex
Vei, nýtt ár.
Auðvitað nákvæmlega eins og öll hin árin, fyrir utan að ég er örlítið feitari. Þó nokkuð feitari, í raun. En ætla ég að strengja einhver heimskuleg heit um að skokka á hverju kvöldi og borða gulrætur? Nei. Þvert á móti hef ég einsett mér að drekka meiri bjór, og borða meira af góðum mat á þessu ári. Einnig er ég að daðra við að byrja að reykja pípu.
Árið hefur enda byrjað vel í þessu ljósi -
Esteban el televisión á heiður skilinn fyrir tvær úrvalsveislur;
Þrettándagleði Stefáns? og
Afmælisveislu Sigvalda og Stefáns / Kveðjuteiti Stefáns®. Hvort tveggja hin mesta skemmtun. Umræddur Stefán ætti einmitt um þessar mundir að vera nýlentur í Lundúnum, og óska ég honum alls hins besta í upprennandi ævintýri.
En nóg um Stefán. Þetta blogg á að vera um mig. Ekki að ég hafi neitt merkilegt að segja frekar en fyrri daginn. Er búinn að vera í skólanum í á þriðju viku núna, eftir tveggja ára hlé. Það er næs - ógeðslega næs - að vera í skóla. Þannig séð. Ef maður miðar við fulla vinnu. Hins vegar er ekki jafn næs að vera
bæði í skóla
og fullri vinnu. Það er raunar ákveðin tegund af masókisma, leyfi ég mér að halda. Og ég virðist haldinn honum. Ekki að ég sé sá fyrsti til að vera í skóla og vinnu. Alls ekki. Ég er ekki að kveinka mér yfir svona smáhlutum. En að hanga í umferðinni í Reykjavík um kl. hálfníu á morgnana til að reyna að komast (einni kennslustund of seint, nota bene) í skólann, strax eftir 9 tíma næturvakt er ekki það skemmtilegasta sem ég geri.
Skólinn er annars ágætur. Löðurmannlegt enn sem komið er (skemmtilegt orð, löðurmannlegt), en það gæti svo sem breyzt (ætti ég að fara að taka upp zetuna?). Eini gallinn er
Viðmótshönnun, sem almennt er djöfull í námsmynd. Ekki svo að skilja að þetta sé erfitt fag - en leiðinlegra, heimskulegar kennt og fíflalegra námsefni er vandfundið - ófundið, að því að ég best veit (og ég hef verið í félagsfræði). Og nú er ég maður sem hefur þó nokkurn áhuga á viðmótshönnun sem slíkri.
En það þýðir ekki að gráta Björn bónda - heldur safna liði og taka samhengisviðtal. Það er sem sagt næst á dagskrá hjá mér í skólanum, ásamt því að skrifa eitt stykki teikniforrit í
Gluggakerfum, hrista nokkra Java-klasa fram úr erminni í
Gagnaskipan og móta örfáar SQL skipanir í
Gagnasafnsfræði. Sem sagt endalaust fjör framundan hjá mér í vor.
Ég hef ekkert meira að segja svo ég muni til.