Stofnað 2004

Mamma þín hefur ekkert bloggað

Já, þið bjuggust ekki við þessu; nýrri færslu á þetta volaða blogg. Í fyrsta skipti í sögu síðunnar sleppti ég úr tveim mánuðum í röð. Heimurinn verður aldrei samur. Það sem hefur gerst síðan síðast:
  • Ég kláraði annarverkefnið í skólanum og fékk út úr því og prófunum.
  • Ég endaði með 9,4 í meðaleinkunn og var efstur á forsetalista tölvunarfræðideildarinnar.
  • Blóm og kransar afþakkaðir.
  • Áfengi alltaf þakkað.
  • Ég fór á Hróarskeldu með Ella, síðar Sigvalda og enn síðar Karin.
  • Ég drakk annarra manna slef úr dós undan Slots Pilsner og ældi í skeggið mitt.
  • Það var mín stoltasta stund.
  • Ég fékk heiftarlegustu magakveisu allra tíma og hélt ég myndi deyja.
  • Ég dó ekki.
  • Roger Waters tónleikarnir voru snilld.
  • Guns and Roses tónleikarnir voru ekki snilld.
  • Eftir Hróarskeldu fórum við Elli til Kaupmannahafnar, Hamborgar, Amsterdam og London.
  • Útigangskona í Hamborg bauð okkur upp á bjór og gaf okkur áritaðan þýskan fána og glasamottur.
  • Lögreglan þurfti að hafa afskipti af okkur á Tapas bar í Amsterdam.
  • Við græddum ókeypis bjór og yndislega reiðan Spánverja á því.
  • Ég ældi fyrir utan ítalskan veitingastað í Amsterdam eftir að Elli hafði hámað í sig pizzu.
  • Það var jafnvel enn stoltari stund.
  • Okkur bauðst að horfa á 100 kílóa svarta portkonu gamna sér fyrir einungis 10 evrur.
  • Við ákvaðum að hafna því annars freistandi tilboði.
  • Ég spilaði á að giska 7632 Lúdó leiki við Elvar í lestum og ferjum.
  • Ég sólbrann.
Þetta er það helsta. Að vísu lýg ég því, þetta er bara það sem ég man eftir akkúrat núna, og ég nenni ekki að rifja fleira upp. Ítarlegri ferðasaga og jafnvel ævisaga er fáanleg hvenær sem er yfir hlandvolgum bjór. En nú er ég farinn að vinna. Síðasta vakt þessarrar tarnar, og síðan eru það 7 dagar af stanslausri drykkju. Indæla rútína.

Athugasemdir:

Blogger larush:
ég var farinn að óttast og það er rétt hjá þér, heimurinn er ekki samur enda er hann aldrei eins. Gott framtak að æla í skeggið sitt, ef ég ætti skegg myndi ég æla á það
20. júlí 2006 20:31