Verslunarmannahelgarblogg
Verslunarmannahelgarblogg er langt orð. Ekki þó jafn langt og túrtappaofnæmisviðbragðahjálp, sem er kostur.
Það er eflaust skrifað einhvers staðar, líklega í Jónsbók eða Gráskinnu, að sérhver bloggari verði að segja frá fyrirætlunum sínum varðandi verslunarmannahelgi, ellegar sæta því að heitri olíu sé hellt í augun á honum. Allavega virðast allir gera það, og þetta er eina skýringin sem mér dettur í hug.
Stefnan hjá mér er sem sagt sett á Norðurland, líkast til ein nótt í Ásbyrgi (m.a. til að hlusta á strengjavæl og tileygt gól - ekki svo að skilja að ég hafi nokkuð á móti því, þvert á móti) og svo restin á Akureyri. Ég verð illa svikinn ef ég hitti ekki einhvern af dyggum lesendum þessarar síðu á viðurstyggilegu, gamaldags Akureyrarfylleríi næstu daga.
Að því sögðu er ég farinn í Ríkið. Lifið heil.
(Ætli það sé móðgun að segja
Lifið heil við fólk sem hefur misst útlim?)