Stofnað 2004

Ár var alda

5 og hálfur tími eftir af árinu 2006! Guð minn góður! Er að fara að éta og drekka mig fullan. Nenni ekki að skrifa neitt, en fannst ég ekki geta skilið við bloggið án áramótafærslu. Nú get ég fengið áfengiseitrun með góðri samvisku. Fyrst ég er að þessu á annað borð get ég alveg eins óskað þeim sem ég þekki gleðilegs árs. Hinum sem ég þekki ekki er mér skítsama um. Mig vantar nafn á snilldarlega einbúakrabbann sem Silli og Stebbi gáfu mér í jólagjöf. Hann er þunglyndur einfari sem starir löngum stundum á bókahilluna mína, eins og hann óskaði sér að hann kynni að lesa. Líklega menningarviti. Og hver veit, ef til vill kann hann að lesa - ég þarf að gera könnun á því. Sem sagt, hér með fer í gang samkeppni um besta nafnið á einbúakrabbann minn. Nafnið þyrfti helst að endurspegla persónuleika hans. Skellið tillögum í athugasemdakerfið, eða í SMS skilaboð. Ég set SMS möguleikann svo ég hafi afsökun þegar enginn svarar þessari færslu. Þá get ég logið því að ég hafi fengið helling af tillögum gegnum SMS til að mér líði betur með sjálfan mig. Vinningsnafnið verður tilkynnt við hátíðlega athöfn í hinni árlegu Þrettándagleði Stefáns™. Jæja, bjórinn bíður. Samhryggist ykkur öllum vegna fráfalls ársins 2006.

Athugasemdir:

Anonymous Helena Björg:
Gleðilegt árið og takk fyrir gömlu árin! Vonandi fæ ég að koma í þrettándagleði Stefáns.. ;)
4. janúar 2007 00:05 
Anonymous Elvar Berg:
Ástþór yngri segi ég aftur.
4. janúar 2007 09:44 
Anonymous Silli:
Hér koma nokkrar tillögur:
Silli
Snabbi
Helmut
Halldór
Múhameð
Túrkmenbasi
Ljótur
Mr. Krabs
Hrólfur
Páll Óskar
Ottó
Lúðvík

Ef þetta dugar ekki máttu bara eiga þig. melur.
5. janúar 2007 01:29 
Blogger Óli Sindri:
Gleðilegt árið sömuleiðis, Helena mín. Og jú, ég þykist þess fullviss að þér verði hleypt inn í Þrettándagleðina.

Og takk fyrir tillögurnar, strákar. Ég þarf að ræða þessar tillögur við krabbann.
5. janúar 2007 07:15 
Anonymous Elvar Berg:
Hehe, ég styð Túrkmenbasi.
5. janúar 2007 16:12