Stofnađ 2004

Ný síđa

Ný og endurbćtt síđa fáanleg hér.

Verslunarmannahelgarblogg

Verslunarmannahelgarblogg er langt orđ. Ekki ţó jafn langt og túrtappaofnćmisviđbragđahjálp, sem er kostur. Ţađ er eflaust skrifađ einhvers stađar, líklega í Jónsbók eđa Gráskinnu, ađ sérhver bloggari verđi ađ segja frá fyrirćtlunum sínum varđandi verslunarmannahelgi, ellegar sćta ţví ađ heitri olíu sé hellt í augun á honum. Allavega virđast allir gera ţađ, og ţetta er eina skýringin sem mér dettur í hug. Stefnan hjá mér er sem sagt sett á Norđurland, líkast til ein nótt í Ásbyrgi (m.a. til ađ hlusta á strengjavćl og tileygt gól - ekki svo ađ skilja ađ ég hafi nokkuđ á móti ţví, ţvert á móti) og svo restin á Akureyri. Ég verđ illa svikinn ef ég hitti ekki einhvern af dyggum lesendum ţessarar síđu á viđurstyggilegu, gamaldags Akureyrarfylleríi nćstu daga. Ađ ţví sögđu er ég farinn í Ríkiđ. Lifiđ heil. (Ćtli ţađ sé móđgun ađ segja Lifiđ heil viđ fólk sem hefur misst útlim?)