Ég dansa ekki. Stelpur dansa.
Karlmenn sitja við bar eða borð og drekka og reykja. Þöglir þar sem það er ómögulegt að tala undir dynjandi Dátatónlist. Eða standa við klósett og æla. Ég geri það stundum. Sleppti því samt um helgina. En ég braut dansbindindið og dansaði á sveittum Bar 11 eftir starfsmannapartý á laugardagskvöldið.
Hneyksli.
Sérstaklega þar sem ég hef ekki stigið inn á Ellefuna í 2 eða 3 ár. Eða meira?
Stebbi man það kannski. Ég var nefnilega með honum þá og hann bjargaði mér frá því að vera laminn af svitastorknum rokkara sem stal sætinu af Stebba. Ég var ekki sáttur þá en eftir á að hyggja var kannski hyggilegra að láta kyrrt liggja.
En ég dansaði sem sagt um helgina. Ég ætla samt ekki að dansa um næstu helgi. Þá á víst að vera 10 ára fermingarafmæli. Sem er frábært því ég er svo stoltur af því að vera fermdur og staðfestur íbúi guðsríkis að ég gríp hvert tækifæri til að halda upp á það. Narta í hold Krists og sötra blóð hans. Yndislegt.
Ég veit ekki alveg hvað 10 ára fermingarafmæli er. Hef aldrei heyrt um svoleiðis áður. Og á víst að fara að hitta fólk sem ég hef flest hvert ekki séð síðan í grunnskólaútskrift. Árið 1999. Fyrir 8 árum. Djöfull er ég orðinn gamall.
Einbúakrabbinn minn gerði heiðarlega tilraun til sjálfsmorðs áðan. Ég leyfi honum stundum að viðra sig. Hann hefur gaman að því að rölta um rúmið mitt, fela sig inni í sængurfellingum og klifra á topp koddafjalla. Í þetta skiptið tók hann á rás, fleygði sér fram af bríkinni og hlunkaðist niður á spónaparketið svo small í. Ég komst að því að ég er ekki alveg tilfinningalaus því það vottaði næstum fyrir tári á hvarmi mínum eitt augnablik. Aumingja Túrkmenbasi. Sem betur fer virðist honum ekki hafa orðið meint af. En þetta er kannski vísbending um að ég þurfi að fara að þrífa búrið hans. Eða redda honum maka.
Metnaðarfullt sjálfshjálparblogg
Atla (Apla) Sigþórs frá 2. mars kveikti í mér smá neista til að reyna að gera kannski eitthvað merkilegra eða gáfulegra við líf mitt. Dusta rykið af litlu svörtu skissubókinni og sjá hvort ég hef einhvern vott af listrænum hæfileikum? Borða hollara fæði, fleiri sojabaunaafurðir? Fara út að skokka, taka armbeygjur? Lesa meira, drekka minna, labba oftar, sofa sjaldnar? Óskhyggja að sjálfsögðu. Nema þetta með sojabaunirnar auðvitað.
Tónlist þessa mánaðar? Pönkpopprokk. Heyrði í fyrsta skipti í
Exploding Hearts um helgina og þótti skítsæmilegt og þónokkuð Clash-legt. En ég var náttúrulega fullur, svo hver veit. 3 af 4 meðlimum drápust víst í bílslysi stuttu eftir að fyrsta og eina platan þeirra,
Guitar Romantic kom út. Verður varla meira pönk en það.