Stofnað 2004

Lyklakippa Megasar

Lyklakippa Megasar?Þarf að fara að vinna eftir svona klukkutíma. Kvöldvakt og svo næturvakt strax í framhaldi. Ég vinn eiginlega aldrei neitt annað en næturvaktir - er eins og algjör byrjandi þegar kemur að hinum vöktunum. Búinn að vinna þarna í að verða 3 ár og þarf samt að spyrja nýju stelpurnar hvað ég á að gera næst. En djöfull er ég magnað góður að skúra. En, já, lyklakippa Megasar. Af einhverjum orsökum skaut hún upp kollinum í umræðum í gær. Hvaða lyklar skyldu vera á henni? Sá sem á besta svarið við því fær stafla af hulstrum utan af Megasardiskum í verðlaun. Diskunum sjálfum var auðvitað stolið frá mér (ég kenni þér um, Ragnar, þú veist það). Kannski ég kryddi verðlaunapottinn með einum Don Tómas smávindli líka. Tónlist þessarar færslu er Lily of the Valley með Queen (linkurinn er á smekklaust unofficial fan vídjó við lagið).

Athugasemdir:

Blogger Sigvaldi:
Það er einn lykill á kippunni. Gamall, lítill lykill að hjólalás. Lásin tilheyrir ævafornu DBS kvenhjóli sem Megas fékk gefins þegar Músakonan dó. Hjólið skírði Megas Gamli Sorrí Gráni en kallaði það ekkert nema GSG eða "Gesgið". Megas tapaði síðar GSG í Ólsen Ólsen við Konráð Sigurðsson eða Konna nögl. Megas hélt hinsvegar lyklinum og bíður enn eftir rímats en Konni neitar nema Megas afhendi lásalykilinn fyrst. Völvan spáir því hinsvegar að þeir muni mætast seint á árinu í bílakjallara Kringlunnar og aðeins annar mun ganga frá því spili lifandi.
20. mars 2007 02:45 
Anonymous Gústi Svangi....:):
Þar sem mig langar í vindilinn sem er í boði,þá er best að ég uppljóstri hvaða lyklar eru á lyklakyppu Megasar....:

Tillaga 1 (væmna tillagan):

Á kyppunni eru 3 lyklar. Sá fyrsti gengur að hjarta konunnar sem hann elskar. Næsti gengur að velgengninni í lífinu. Sá þriðji gengur að leyndardómi Kvasirs... það er sama hver spurningin er..svarið liggur hjá Kvasir..tékkaðu á því..

Tillaga 2 (raunhæfa tillagan):

Húslykill,lykill af stúdíóhúsnæðinu,Lykill af húsnæði vinkonu sinnar (þarf að vökva blóm um páskanna v/utanlandsferðar), og einhver lykill sem hann fann við hlemm árið 1988,en hefur ekki tímt að henda..

Tillaga 3 (hún skýrir sig sjálf)

Á þessari kyppu er lykill dauðans!! Lykillinn af eilífu myrkri sem haldið hefur þögninni í heljargreipum í þúsundir ára. Aðeins Skarpskyggni Megasar heldur verndarhendi yfir mannfólkinu þar sem hann gætir lykilsins eins og sjáaldurs augna sinna (eða eins og síðasta hassköggulsins). Myrkraöflin eru nær en við höldum,ekki mæld í metrum,heldur tíma.....

Kv...Gústi Svangi...
20. mars 2007 21:34 
Blogger larush:
ég tel líklegast að þessi lykill gangi að gömlu gasstöðinni við hlemm..
20. mars 2007 23:10