Stofnað 2004

Næturvakt

Glænýr reglulegur liður. Auk þess að tilgreina tónlist hverrar færslu mun héðan í frá líka fylgja krot færslunnar. Munurinn er reyndar sá að krotið mun verða eftir mig, en tónlistin ekki. Allavega ekki fyrr en Codename: Bagína fer að láta til sín taka - bíðið spennt. Krot þessarar færslu er sem sagt þessi frábæra mynd. Af manni. Blehh. Mig langar í tablet við tölvuna. Það er ekki hægt að teikna með mús. Mér telst til að þetta sé fjórða bloggið mitt í marsmánuði. Ég hef ekki bloggað svona reglulega síðan... ja, ég held ég hafi bara aldrei bloggað svona reglulega. Fyrst dansárátta og svo þetta. Stórfurðulegt. Ég á fyrir höndum erfitt val þegar kemur að því að úthluta verðlaunum fyrir lyklakippu Megasar. Silli og Gústi svangi eiga báðir góðar tillögur (reyndar er vafamál hvort Gústi hafi svindlað með því að þrítryggja sína tillögu). Lalli rétt missir af pottinum sökum skorts á baksögu - en tillagan er vissulega góð. Sem betur fer gerði ég ráð fyrir þessum möguleika, þar sem ég luma á tveimur Don Tómas smávindlum. Hah! Geisladiskahulstrunum er svo hægt að skipta bróðurlega milli vinningshafanna. Ég þarf að fara að huga að því að selja bílinn minn. Ef einhvern vantar ágætis Mitsubishi Galant af árgerð 1998 má hann hafa samband (eins og það er nú líklegt að einhvern vanti akkúrat það). Keyrður eitthvað tæplega 170.000 kílómetra og skoðaður út árið. Örlítil stuðarabeygla eftir að ég bakkaði á sendibíl á Laugaveginum, en ekkert sem ætti að vera erfitt að lagfæra. Geislaspilari sem vill bara spila original diska, en ekki skrifaða - mér til mikillar ánægju. Sjálfskiptur, krúttlegur og traustur bíll. Vá, hvað ég er góður sölumaður. Furðulegt að ég skuli ekki vinna á bílasölu. Ég ætla að kynna til sögunnar enn einn reglulegan lið á blogginu. Af því það er svo gaman að þeim. Héðan í frá mun fylgja hverri færslu ein gagnslaus staðreynd um sjálfan mig (GSUSM™). Og þetta verða sannarlega algjörlega gagnslausar og ómerkilegar staðreyndir. Síðar meir mun þeim verða safnað saman og þær gefnar út í prósaljóðabók. Sem sagt; GSUSM™ fyrir þessa færslu: Ég sef yfirleitt með koddann ofan á andlitinu en ekki undir hausnum. Tónlistin: Guns of Brixton með The Clash. Svona fyrst ég minntist á Clash fyrir einhverjum færslum síðan.

Athugasemdir:

Anonymous Gústi Svangi:
Fái ég vindilinn,þá er ég tilbúinn að gefa eftir geisladiskahulstrin. :)

kv,Gústi Svangi
21. mars 2007 07:14