Stofnað 2004

Píanóið var að drekka - ekki ég

Ég hlakka til sunnudagskvölds. Þá er þessari vaktatörn lokið og ég get fengið mér bjór. Ekki það að ég hafi neitt sérstakt á móti næturvöktunum. Þær eru fínar. Trufla mig aðallega í þeirri viðleitni minni að fá mér bjór. Ég hef enn ekki lagt í að vera drukkinn í vinnunni nefnilega. Það gæti verið kostur í stöðunni.

Réttara sagt hef ég ekki lagt í að vera drukkinn í akkúrat þessari vinnu. Þegar ég var 17 ára var ég einu sinni drukkinn að vinna á vídjóleigu á Akureyri. Það var skemmtilegt. Hinn aðilinn sem var með mér á vakt skuldaði mér bjór, minnir mig, og kom með kippu eða tvær í vinnuna til að borga mér til baka. Af einhverjum sökum fannst okkur bráðsniðugt að fá okkur aðeins af veigunum, og það endaði sem sagt þannig að ég var drafandi og slefandi að reyna að skanna inn Kærleiksbjarnaspóluna sem saklausa 10 ára stelpan, sem aldrei hafði séð drukkinn mann á ævinni, ætlaði að leigja. Og svo velti ég snakkstandinum. Það er reyndar eitthvað ýkt í þessari frásögn hjá mér.

Allavega var ég drukkinn að afgreiða spólur.

GSUSM™: Blóðþrýstingurinn minn akkúrat núna er 135/68 og púlsinn 81.

Tónlist: Tom Traubert's Blues. Ef hægt væri að tiltaka einhverjar plötur sem bestu plötur Tom Waits þá yrði Small Change pottþétt í hópnum. Depurð og drykkja. Það hentar mér vel.

Athugasemdir:

Blogger larush:
ojj fyllerí og bjór og læti og spólur og blóðþrýstingur.. hæ
23. mars 2007 21:56 
Blogger Óli Sindri:
Hæ Lalli
24. mars 2007 21:00 
Blogger Sigvaldi:
Ég man eftir leigufylleríinu.... Þetta er ekkert ýkt hjá þér, minnir líka að þú hafir dúndrað niður nokkrum spólurekkum. Metall.
26. mars 2007 12:41