Ráðuneyti kjánalegra göngulaga
Andskotinn. Ég sveik loforðið við sjálfan mig og dansaði líka um síðustu helgi. Hvað er í gangi? Ég er að breytast í dansfífl.
Fín stemmning í Keflavík annars. Er samt svekktur að hafa farið á mis við allar lögreglurassíurnar sem voru víst í gangi í bænum, og líka fyrrverandi bekkjarfélagann sem ætlaði að berja einhvern þarna um kvöldið. Hef líklega verið í móki á dansgólfinu á meðan allt fjörið var.
Svo var ég í öðru sæti í stólaleik. Þvílík dúndrandi gleði.
Nú er klukkan rúmlega 6 á þriðjudagskvöldi og ég sit með bjór og tóbak og blogga á bloggið mitt sem enginn les meðan ég hlusta á
Squirrel Nut Zippers, þegar ég ætti í raun að drullast til að teikna skjaldarmerkistattúið sem ég lofaði Stebba. Töff ég.
Ég og
Stebbi ákváðum að stofna hljómsveit í gær. Ég ætla að hafa það skriflegt hérna á blogginu svo það verði ekki guggnað á því.
Silli fær kannski að vera með líka ef hann biður fallega. Vinnutitill er
Bagína og aðalsmerki sveitarinnar verður algert, fullkomið hæfileikaleysi. Og eiturlyfjaneysla.
Eins og alvöru gelgja fer ég fram á það við alla (báða?) lesendur þessarar síðu að þeir kommenti hérna fyrir neðan. Og svo vil ég bjórblautt gamaldags Akureyrarlegt djamm á föstudagskvöldið næsta. Og frið á jörð. Og plakat með mynd af róbótaskjaldböku.
Tónlist færslunnar eru ofangreindir
Squirrel Nut Zippers.