Stofnað 2004

White Trash

Ber að ofan, berfættur, nývaknaður með bjór og sígarettu sitjandi í sólstofu í Breiðholti. Klukkan hálffimm á þriðjudegi. Það er skilgreiningin á White Trash, og ég uppfylli hana fullkomlega.

Já og þetta er sjötta bloggfærslan mín í mars 2007. Fokk.

Ragnar bróðir átti afmæli í gær. Ég fletti honum upp á Google í tilefni dagsins en fann ekkert merkilegt. Eða jú, ég fann þessa bráðskemmtilegu og uppbyggilegu umræðu á Femin.is um bókina Svartaskóla:

Ég mátti til með að senda inn smá af bók sem ég ligg í kasti yfir hérna! Hún heitir Svartiskógur og Æskan gaf þessa bók út, hún er eftir Ólaf Sindra Ólafsson og Ragnar Þór Pétursson.

Ekki alveg, en nógu nálægt. Sem minnir mig á að ég á ennþá einhver 30 plöstuð eintök af þessu meistaraverki hérna einhvers staðar. Klárlega verðlaun fyrir næsta bloggleik.

Ekkert krot með þessari færslu - ég sé ekki á skjáinn til að teikna í þessari sól. Mig langar í skanna.

GSUSM™: Ég er með 10 cm ör á vinstri kinn eftir að ég hljóp á gaddavírsgirðingu sem krakki.

Tónlist: Á kránni með Mánum. Væmnasta lag sem hefur verið samið á íslensku.

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
Ég vona að þú fáir lungnakrabba og drepist, hálfvitinn þinn!

R

Takk fyrir afmæliskveðjuna.
27. mars 2007 22:13 
Anonymous Nafnlaus:
ég bendi höfundi(höfundum),að ég á ekkert eintak af umræddri bók,en langar í allavega 3 stykki. Get greitt með guðsorði og 18 rækjum.

Kv,Gústi Svangi
28. mars 2007 09:00 
Anonymous Egill Thoroddsen:
Var að flækjast eitthvað um á netinu og endaði á einhvern óskiljanlegan hátt inn á síðunni þinni og hvað er ber hæst á góma...jú Svartiskóli sem ég las yfir áður en hún kom út á sínum tíma og á eitt eintak í hillunni. Alveg mögnuð tilviljun og vildi bara kvitta af þeim sökum.
30. mars 2007 16:13 
Blogger Óli Sindri:
Ég held ég fái skorpulifur áður en lungnakrabbinn birtist, Ragnar.

En já, Egill, langt síðan maður hefur séð þig. Hjálp þín var ómetanleg við að koma þessu bókmenntaverki í umferð.
1. apríl 2007 19:28