Alteregó
Það á að frumsýna Simpsons kvikmynd einhvern tíma á næsta ári. Af því tilefni er ekki úr vegi að rifja upp að fyrir 5 eða 6 árum átti ég notandanafn á huga.is sem ég notaði aðallega til að pirra fólk. Ég hef alltaf verið góður í að stofna alteregó á Netinu í þeim tilgangi. Fyrir 5 árum var sem sagt verið að ræða væntanlega Simpsons kvikmynd (sem búist var við að yrði frumsýnd árið 2003) og ég ákvað að svara. Sumir voru að velta fyrir sér hvort sömu leikarar yrðu í myndinni og í þáttunum. Þetta var svarið mitt:
Nei, leikaraliðið er annað. Teiknimynd í fullri lengd er dýr fjárfesting, svo framleiðendurnir vildu ekki taka neina áhættu og ákváðu að fá fræga(ri) leikara til að tala inn á aðalhlutverkin. Orðið á götunni er svona:
Homer: Robin Williams Marge: Helen Hunt Bart og Lisa: Jonathan Taylor Thomas Maggie: Ekki ákveðið (líklega Jonathan Taylor Thomas)
Og í öðrum stærri hlutverkum:
Moe: Chris Rock Barney: Pierce Brosnan Mr. Burns: Jack Nicholson Smithers: John Cleese
Ég sendi Sambíóunum póst, til að fá að vita hvenær þeir byggjust við henni í sali landsins, og þetta var svarið:
Date: 07.01.02 From: Árni Samúelsson (asamuelsson@sambion.is) Subject: Re: Simpsons-myndin
Til að svara bréfi þínu:
Samkvæmt upplýsingum frá 20th Century Fox er "The Simpsons: Stupid is What Stupid Does" (Fullt heiti myndarinnar) væntanleg í bíó vestra 23. júlí 2003, og verður frumsýnd í Sambíóunum þann 1. ágúst sama ár, ef allt gengur eins og Fox segja.
Ég get ekki staðfest leikaravalið sem þú sendir mér, en hitt get ég staðfest að vanalegu raddirnar munu ekki tala inn á myndina.
Myndin mun verða gríðarlega dýr í innkaupum, og er nú verið að athuga þann möguleka að hafa bara eina útgáfu af myndinni í gangi (ekki bæði textaða og talsetta eins og venjan er með teiknimyndir). Þar sem mjög sterkar raddir eru með talsetningu teiknmynda er því líklegt að aðeins verði í boði íslensk útgáfa af myndinni.
---Þar hafiði það. Með þær upplýsingar í huga er þetta líklegasta leikaraliðið sem við munum njóta:
Homer (Haraldur): Laddi Marge (Margrét): Halldóra Geirharðsdóttir Lisa (Lísa): Steinunn Ólína Bart (Baddi): Sigurður Sigurjónsson Maggie (Magga): Laddi
Þetta er það sem ég veit.
Í kjölfarið varð allt vitlaust, einhver stofnaði þráð og hvatti alla til að senda póst til Árna Samúelssonar (á netfangið sem ég skáldaði upp þarna að ofan) til að mótmæla þessu óréttlæti og reiðin kraumaði í nördunum.
Af hverju er ég að skrifa um þetta núna? Hef ekki hugmynd.
Mér fannst þetta samt skemmtilegt. Og viðeigandi, vegna þess að það stefnir í að leikaravalið í íslensku útgáfunni verði í alvöru ekki mikið skárra en ég spáði fyrir um þarna. Svo er það líka skemmtilegt vegna þess að erkióvinur minn á Huga á þessum tíma var drengstauli sem kallaði sig SBS og komst í fréttir fyrir stuttu vegna þess að hann fær að fara í áheyrnarprufu fyrir hlutverk í íslensku talsetningunni.
Þessi grein fannst mér líka skemmtileg. Ég sendi hana inn á dulspekiáhugamálið á huga.is, en henni var því miður eytt þaðan.
Ég hafði greinilega allt of mikinn frítíma. Og hef enn, fyrst ég er að eyða tíma í að segja frá þessu núna. Enda algjörlega tilgangslaust. En fólk er alltaf að væla um að ég eigi að blogga meira, svo gjörið svo vel.
Bévaður geislaspilarinn í bílnum mínum sem spilaði ekki skrifaða diska er hættur að spila venjulega diska líka. Og útvarpsloftnetið er brotið. Svo núna neyðist ég til að syngja sjálfur ef ég vil heyra tónlist þegar ég nota bílinn. Urr.
GSUSM™: Ég syng ekki vel.
Tónlist: Life on Mars? með David Bowie. Frumlegt.
