Gubb
Best að breyta þessu bloggi aftur í 13 ára gelgjudagbók eitt augnablik. Mér líður að sumu leyti vel en að öðru leyti bölvanlega.
Síðasta helgi, fólkið sem ég þekki, nýi bolurinn minn, eplabökur, ískalt vatn, bananar og Megas eru dæmi um hluti sem láta mér líða vel. 3 daga ælupest, að æla í vinnunni, fífl í umferðinni og helvítis flautlagið með Peter, Björn, Benny og Agnetu (eða hvað sem þeir heita) eru svo aftur dæmi um hluti sem ég er ekki að taka í sátt þessa dagana.
Heimsendir í miðbænum er svo einhvers staðar mitt á milli. Það er eitthvað lúmskt gaman við að sama dag skuli hálfur miðbærinn brenna og sjóðheitt syndaflóð skola fyllibyttum niður Laugaveginn. Ef einhvern tíma væri ástæða til að trúa á eitthvað guð væri það núna. Svo var náttúrulega fréttaflutningurinn á RÚV sérdeilis frábær. Vilhjálmur borgarstjóri valsandi um með flugmannshjálm úr fyrri heimsstyrjöldinni í allan dag var einnig glæsilegt framtak sem gaf deginum viðeigandi blæ.
Og þar hafiði það. Innihaldslaust og tilgangslaust blogg. Og glöggir lesendur taka eftir að ég hef ekki sinnt reglulegu liðunum eins og kroti dagsins lengi. Fokk það, reglur eru til þess að brjóta þær.
