Leigumóðir
Ég er búinn að týna geisladiskatöskunni minni. Magnað. Hvers vegna týnir maður bara góðum diskum? Ofan í skúffu hjá mér eru einhverjir diskar með Robbie Williams og Quarashi og einhverjum viðlíka skít síðan ég var í áttunda bekk í grunnskóla. Ekki týnast þeir. Urr.
Er búinn að vera að hlusta á Nouvelle Vague undanfarna daga. Það er gott stöff. Síðpönk og nýbylgja í bossa nova útsetningum. Kætandi. Tónleikar með þeim á föstudaginn. Það verður hresst.
Var að hlusta á útvarpið áðan þegar eitthvað lag með Sálinni (held ég) var spilað. "Hringadróttinn... hringar mig" er það eina sem ég man úr þessu meistaraverki. Ég komst ekki hjá því að hugsa um hversu mikið af hörmulega lélegum textum hefur verið samið á íslensku. Til að fagna því, og til að reyna að fá einhvern til að kommenta á þetta helvítis blogg, þá er hér leikur: Finnið versta íslenska lagatexta sem ykkur dettur í hug og skrifið í athugasemdirnar. Vegleg óvænt verðlaun fyrir versta textann. Óvænt vegna þess að ég veit ekkert hver þau verða sjálfur. En þau verða eflaust frábær. Dómnefnd er ég.
Það liggur við að mig langi að setja í reglur að textar með dúettnum Snooze séu bannaðir. Það er eiginlega of auðvelt. En ég sleppi því.
GSUSM™: Ég er algjörlega og fullkomlega ófær um að halda uppi kasjúal samræðum um daginn og veginn við fólk. Fokk ég.
Tónlist: Love Will Tear Us Apart með Nouvelle Vague.

