Páskar
Í tilefni páskanna er ég með lítið sár í vinstri lófanum, á stærð við naglahaus, sem ég get horft á til að minnast þjáninga Krists á krossinum fyrir mig og gjörvallt mannkyn. Undarleg tilviljun, en samt ekki sár eftir krossfestingu. Mig grunar að þetta sár sé frekar eftir misheppnaða tilraun til að opna krukku af viðurstyggilegu Marmite í vandræðalegu partíi um síðustu helgi.
Þema partísins var sem sagt að vera vandræðalegur. Ég er góður í því og brást sjálfum mér ekki frekar en venjulega. Hitaði upp með því að fá eitthvað krampakast þegar ég var að snyrta á mér hökutoppinn og leit því um kvöldið út eins og 14 ára gelgja að reyna að safna skeggi. Vandræðalegt. Restin af kvöldinu var í svipuðum dúr - drakk of mikið, sagði of lítið, ældi. Mjög hresst. Gott partí og fínt fólk.
GSUSM™: Lyktin af Marmite fær mig til að æla.
Tónlist: Black með Bonnie 'Prince' Billy. Til heiðurs Silla og þunglyndi um allan heim.

