Stofnað 2004

Romm í kók

Krotið hérna til vinstri er pýra. Stórskemmtileg dýr, pýrur. Frumgerðirnar af fyrstu pýrunum má finna í líffræðiglósubókunum mínum frá því í 2. eða 3. bekk í MA. Ég hef reyndar ekki flett í gegnum þær síðan þá, en ég teiknaði þessa fallegu bleiku pýru eftir minni. Við vorum sem sagt að læra um pýruat í líffræði; sem er eitthvað sem glúkósi breytist í í líkamanum minnir mig (og ef ég man það rétt á ég skilið Thule (reyndar á ég ekki lengur skilið Thule fyrir að hafa vitnað í þessa Thule auglýsingu (skamm, skamm ég (djöfull er þetta orðið mikið af svigum (hvað getur maður haldið lengi áfram?))))) - eina sem ég man með vissu var að okkur Silla fannst mun rökréttara að pýruat snérist um að etja saman skæðum smákvikindum sem heita pýrur. Og þar með fæddust pýrur.

Frábær saga.

Allavega. Tónleikarnir á föstudagskvöldið voru snilld. Ég ofnota yfirleitt orðið snilld, en það á vel við í þessu tilfelli svo ég læt það standa. Og góður félagsskapur gerir snilldarlega tónleika jafnvel enn betri. Magnað stöff. Fokk, ég ofnota orðið magnað líka. Og fokk. En ég hef lítið notað orðið dreyrasýki svo ég er að spá í að fara að nota það meira í staðinn. Ásamt orðinu epískur. Tónleikarnir voru dreyrasjúklega epískir. Hmm.

Ég og Stebbi fórum í dag að bóka utanlandsferð. Lanzarote þann 10. júní í tvær vikur. Ég veit ekkert um Lanzarote. Mér skilst að það sé ein af Kanaríeyjunum, og orðið á götunni er að þar fáist bjór. Það nægir mér. Ég er reyndar yfirleitt ekki mikill aðdáandi svona sólarlandaferða (sólbað - drykkja - og - extasí - í - reifpartíi - meðan - maður - hlustar - á - scooter - og - blæs - í - flautu - ferðir), en þetta verður fínt. Afskaplega fínt, reikna ég jafnvel með. Jájá. Síðustu forvöð að láta eins og unglingur meira að segja því ég mun eiga 24 ára afmæli þarna úti. Og eins og allir vita er það upphafið að endalokunum. Strax á miðnætti 18. júní reikna ég með að hrukkur byrji að brjótast út, öldrunarblettir spretti upp, ég verði skyndilega fjarsýnn og missi þvag í fullorðinsbleyjuna sem ég var nógu forsjáll að setja á mig. Pottþétt.

Dómnefnd í vondutextakeppninni hefur lokið störfum og val hennar er endanlegt. Það er hreinlega ekkert sem getur toppað Villa og Lúllu. Það var einróma álit dómnefndar. Til hamingju, Imba. Verðlaunin eru... uh... eitthvað. Ákveðin síðar þegar ég hef meira hugmyndaflug. Akkúrat núna held ég hins vegar að ég fari að leggja mig, enda næturvakt í kvöld.

GSUSM™: Ég er hættur að reykja. Þannig séð. Aha! Sum ykkar vissu ekki einu sinni að ég hefði byrjað. Eip!

Tónlistin: Red Right Hand með Nick Cave and the Bad Seeds. Hörmulegt myndband samt.

Athugasemdir:

Blogger larush:
"dreyrasjúklega epískt" - það er næs ógeðslega næs
30. apríl 2007 20:29