Ein kokteilsósa!
Titill bloggsins er innblásinn af samræðum fólks á næsta borði við mig á veitingastað áðan. Það var æðislegt. Kona og karl um fimmtugt á sínu fyrsta stefnumóti og ástarbríminn lak úr munnvikum þeirra. Eða hvort það var safi úr hamborgurunum. Allavega annað hvort. Bæði frekar vel í holdum, hann með derhúfu, dökk gleraugu, hálfgerða kryppu og nefmæltur með afbrigðum; hún með fjórar myndarlegar undirhökur og broddgaltarklippingu. Hann keypti vínflösku handa sér (hafði hana sín megin á borðinu til öryggis) og talaði svo fjálglega um allar vinkonurnar sem hann hefði átt og hvernig hann ætti erfitt með að finna konur á sínum aldri til samvista. Þegar hamborgararnir komu loks á borðið sagði hann farir sínar ekki sléttar.
Derhúfan: Fröken! Afgreiðslustelpa: Já, get ég aðstoðað? Derhúfan: Er engin kokteilsósa með þessu? Ég vil kokteilsósu! Afgreiðslustelpa: Ekkert mál. Eina kokteilsósu? Derhúfan: Eina kokteilsósu? Eina!? Nei, bara kokteilsósu í svona skál (sýnir með fingrunum hvernig skálar líta út) Afgreiðslustelpa: Uh, já. Kemur rétt strax. Derhúfan: (við broddgöltinn) Eina kokteilsósu! Hah! Eina sósu! Hnuss. Broddgölturinn: Híhíhí. Derhúfan: Eina sósu, fuss... *ógreinilegt muldur - líklegast um kokteilsósu*
Allt samtalið var í þessum stíl. Ef ég hefði ekki verið búinn með bjórinn minn og sígaretturnar hefði ég staldrað lengur við til að fylgjast með þróun stefnumótsins. Þetta stefndi í að verða epískt.
Annars fór ég í teiti í gær. Vandræðalega teiti. Sem heppnaðist reyndar mjög vel; dans, drykkja, baknudd frá ókunnugum karlkyns útlendingi og frískur og fjörugur Hemmi Gunn. Hvernig gæti þessi blanda enda klikkað? Og fjári fínt fólk.
Jájá. Best að búa sig undir meiri drykkju og kosningavöku í kvöld. Ohh, ég er svo spenntur að sjá lýðræðið að verki og atkvæðið mitt skipta sköpum. Þegar tölurnar úr suðvesturkjördæmi hafa verið lesnar og sveittur yfirmaður kjörstjórnar klykkir út með að minnast á auðu atkvæðin og þau sem fólk náði að ógilda með að skrifa nafnið sitt undir eða hnyttnar vísur um kosningar - þá get ég stoltur sagt að eitt þessara tilgangslausu auðu atkvæða sé mitt. Minn auði, bleiki miði. Jei.
Tónlistin: Eitthvað annað en Eurovision. Hvað sem er. Fokk.

