Gláka
Hmm tja. Ég veit að æstir aðdáendur þessa bloggs bíða spenntir eftir sögum af rúntinum og hver er hrifinn af hverjum. Verst að mér finnst frekar leiðinlegt á rúntinum - nema náttúrulega á Akureyri, þar var alveg frábært að keyra 45 hringi kringum Nýja Bíó og hlusta á Þórhall miðil á meðan. Bölvaður melurinn hann Þórhallur svaraði mér samt aldrei þegar ég reyndi að hringja inn í þáttinn.
Búin að vera skítsæmileg helgi hins vegar. Upplifði á föstudagskvöldið í fyrsta skipti hvernig er að vera edrú í miðbæ Reykjavíkur um helgi. Það var hresst. Stebbi sá líka um að drekka á við tvo. Hápunktur helgarinnar er samt klárlega að hafa valtað yfir strákana í pool í gær. Hah! Djöfull er þetta skemmtilegt blogg.
Reyndar lýg ég því líka að poolið hafi verið hápunkturinn.
Ég er sígarettulaus og bíllaus og það er ekki búið að opna í sjoppunum sem eru í göngufæri við mig. Ó, hvað lífið er erfitt við mig. Ég sem ætlaði mér að njóta þess að reykja duglega fram á föstudag - þá þjónar það engum tilgangi lengur.
Það er nautasteik í ísskápnum sem ég er alvarlega að spá í hvort ég eigi að henda á grillið. Klukkan 8 að morgni. Hmmm. Nei, kannski ekki. Samt... freistandi.
Ég hef verið svo andlaus og hugmyndasnauður undanfarið að það er að drepa mig. Ef ég sest niður með autt blað fyrir framan mig til að skrifa á eða teikna dettur mér ekkert betra í hug en rissa eitthvað sem ég hef krotað ótal sinnum áður eða skrifa einhver orð sem ég hef notað margoft. Reyndar er kannski erfitt að fara að finna upp ný orð til að geta skrifað eitthvað frumlegt. En fjandinn hafi það, ég ætti þó allavega að geta raðað þessum orðum saman á frumlegan eða áhugaverðan hátt. Ble.
GSUSM™: Uppáhaldsliturinn minn er grænn eða eitthvað.
Tónlistin: I Can Hear Music með Beach Boys. Það er komið sumar.

