Stofnað 2004

Húmbúkk

Einhverra hluta vegna gaf ég það loforð á Prikinu í gærkvöldi að ég myndi blogga. Fásinna. Annars er fátt betra en að sitja og fá sér einn bjór áður en maður fer á næturvakt. Það er líka góð afsökun til að reykja nokkrar sígarettur í leiðinni, því ég reyki náttúrulega ekki nema þegar ég drekk. Eða yfirleitt ekki.

Sjitt, nú er ég búinn að sitja í 10 mínútur og reyna að láta mér detta eitthvað fleira í hug til að skrifa hérna. Líklega góð vísbending um að þetta blogg var slæm hugmynd. Og nú var Silli að hringja í mig og biðja mig um að koma eitthvað út svo ég ætla að beila á þessu.

Ég tilnefni þetta blogg sem heimsmet í tilgangsleysi.

Tónlist: War of the Worlds eftir Jeff Wayne af vínilplötu og gegnum heyrntartól í myrkvuðu herbergi.

Athugasemdir:

Anonymous imba:
öööömurlegt blogg. bú.
20. maí 2007 19:08 
Blogger Óli Sindri:
Þú ert alltaf að dæma mig!

*grát*
20. maí 2007 19:54 
Anonymous imba:
oj.. en glatað kombakk.
20. maí 2007 20:06 
Anonymous alexandra:
búúúú á léleg blogg *hendirotnuðumtómötum*
20. maí 2007 23:35 
Blogger larush:
áfram óli! fleiri svona tilgangslaus blogg - ekki hlusta á þessa vitleysu..
22. maí 2007 08:53