Ókei
Ég lýsi hér með frati á óskabloggið hans Ella. Það sem kom út úr ljóðasmíðunum er ekki fólki bjóðandi - ekki einu sinni fólki eins og því sem les þetta blogg. Þannig að ég les það bara fyrir þig í einrúmi við kertaljós og seiðandi fiðlutónlist, Elli minn. Með munúðarfullu röddinni minni.
Tja, já. Af einhverjum orsökum varð ég nokkuð kenndur af heilum þrem bjórum í gærkvöldi. Annað hvort hefur stelpan á barnum sett rohypnol í bjórinn minn eða ég er aftur kominn með áfengisþol á við 15 ára. Ég hallast að rohypnolinu - egós míns vegna.
GSUSM™: Ég hef litað hárið á mér svart. Það var ekki málið.
Tónlist: What What (In the Butt) með Samwell. Hvað? HVAÐ?
