Quesadillas!
Hráefni:
Mexíkóskar flatkökur (tortillas) Ostur Tómatar Jalapeños Smjörklípa
Við þessa grunnuppskrift má bæta hverju sem er; kjöti, kjúklingi, beikoni, frekara grænmeti... Möguleikarnir eru óteljandi! Þvílík undur.
Aðferð:
Bræðið agnarlitla smjörklípu á miðlungsheitri pönnu, skellið einni tortilla köku ofan á og nuddið vel uppúr smjörbráðinni. Rífið eða sneiðið ost og dreifið ofan á kökuna. Skerið tómata og jalapeños í litla teninga og sáldrið ofan á ostinn. Sama skal gert við hvaða annað hráefni sem á að fara í réttinn.
Þegar osturinn er vel bráðinn er tími til kominn að loka kökunni - leggið annan helminginn yfir hinn svo úr verði hálfmáni með ostablöndunni á milli.
Quesadillan er til þegar tortillan er fallega gullinbrún og stökk. Takið af pönnunni og skerið í sneiðar af hentugri stærð.
Borið fram með ógrynni af salsa. Guacamole og sýrður rjómi gengur líka ef það vaggar bátnum ykkar.
Tími og fyrirhöfn:
Hérumbil 10 mínútur með öllu. Lítið sem ekkert uppvask og pannan svo gott sem hrein eftir eldun. Fullkomið.
Ég ætlaði að taka mynd af þessari gullfallegu sköpun minni, en því miður virðist vinnumyndavélin hafa farið í utanlandsferð.
Fylgist spennt með næsta þætti þegar ég uppljóstra leyndarmálið bak við víðfrægu kryddhrísgrjónin mín.

