Piff
Núna ætti ég að vera staddur á hótelherbergi á Lanzarote, með slef í munnvikinu og fullan maga af strandkokteilum og bjór. En í staðinn er ég bara í mínu eigin íslenska herbergi, með ekkert í munnvikinu og fátt í maganum annað en hálfmeltan banana, Build-up og sojamjólk. Stebbi og Heimir verða bara að sjá um að drekka fyrir þrjá þarna úti. Ég hef fulla trú á þeim.
Ég þurfti sem sagt að hætta við utanlandsferðina vegna veikinda. Fór í blóðprufu á föstudagsmorguninn og fékk svo símtal seinna um daginn þar sem mér var skipað að fara upp á bráðamóttöku. Var þar í einhverja fjóra tíma og enn veit enginn hvað er að mér. Eða jú, einkennin eru skýr, en orsökin ekki. Og ég fékk ekki einu sinni að eiga röntgenmyndina af lungunum mínum. Hnuss.
Gerði samt heiðarlega tilraun á föstudagskvöldið til að vera eiturhress dansari. Það gekk ekkert of vel - ég uppgötvaði að ég er tæplega nógu eiturhress til að fara til útlanda. Þannig að hér er ég. Bíðandi eftir símtali með frekari niðurstöðum, og hlakkandi til ítarlegri rannsókna í vikunni. Sneiðmynd og læti. Allt afskaplega skemmtilegt.
Tónlistin: Keep Yourself Alive með Queen. Írónískt? Hoho.

